21.08.1917
Neðri deild: 39. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í C-deild Alþingistíðinda. (3259)

159. mál, forkaupsréttur á jörðum

Einar Arnórsson:

Hv. frsm. (J. J.) hefir, að mjer skilst, fallist á þær athugasemdir mínar um formatriði, er jeg tók áður fram, og laga má við aðra umr.

Aftur mælti hann á móti því, er jeg sagði um ýms efnisatriði. Það má vel vera, að eftirgjaldið kunni að hækka. Hver yrði afleiðingin? Kaupverð jarðanna hækkaði þá svo, að það væri ekki meiri hagur að eiga þær.

Háttv. frsm. (J.J.) gerði lítið úr töfinni og bjóst við, að sú yrði aðalreglan, að einstakir menn keyptu. Ef einstakir menn sæktu jafnframt um ábúð á jörðinni, þá er þetta rjett hjá háttv. frsm. (J. J.) En nú mun oft verða svo, að eigendur vilja selja, án þess að nokkur sje farinn að tala um að fá jörðina til ábúðar. Einstakir menn geta boðið þetta og þetta í jörðina, en ekki með þeirri ætlun að taka hana til ábúðar, og þegar svo stendur á, verða menn að fara frá Heródesi til Pílatusar, frá sveitarstjórn til landsstjórnar. Ef svo fer, að sveitarfjelagið vill kaupa, þá þarf ekki að fara lengra. En jeg veit ekki til, að sveitarfjelög hafi enn þá gert mikið að því að nota sjer forkaupsrjett sinn, er þau nú hafa að lögum. Oft er svo, að sveitarfjelagið treystir sjer ekki kostnaðarins vegna. Menn undrast þess vegna enn í dag, ef sveitarfjelag notar sjer forkaupsrjettarheimildina í lögunum. Það mundi þá sjerstaklega vera jörð nálægt kaupstað, sem fyrir kernur að hreppurinn kaupi, en það mun ekki alment. Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) sagði, að þau notuðu rjettinn iðulega. En sú notkun er venjulegast eftir á, er búið er að selja jörðina. Þá fer sveitarstjórnin að rumska, og fer í mál. Það hafa eitthvað 2—3 slík tilfelli komið fyrir landsyfirrjettinn á síðustu árum, og sveitarfjelagið auðvitað stundum tapað.

Svo ber að athuga fjárhagshliðina, að því er hún snýr að landssjóði. Auðvitað reyna menn venjulega að fá svo mikið fyrir jörðina, sem kostur er á, — selja hana uppsprengdu verði. Samkvæmt hlutarins eðli er tilgangurinn ekki sá, að landssjóður fái jörðina ódýrar en annar, sem vill kaupa hana af seljanda. Um borgunarskilmálana mundi fara svo, að annað hvort sje borgað út í hönd, eða kaupandi gefi út skuldabrjef fyrir nokkrum hluta kaupverðsins með sæmilegum vöxtum, en sennilega þó ekki hærri en venjulegum útlánsvöxtum, er eigandi gæti fengið af fje sínu. Svo á landssjóður eftir að selja þessar jarðir til ábúenda. Hann á að selja fyrir virðingarverð, fá borgaðan út strax ? kaupverðsins, og svo 9/10 kaupverðsins á 28 árum með 4% ársvöxtum. Það var þetta atriði, sem jeg vildi athuga. Þar sem það er fjárhagsatriði, átti samkvæmt þingsköpum fjárveitinginganefnd að segja sitt álit um þetta frv. Það getur kostað landssjóð fjárútlát, og þótt sjóðirrnir heiti Kirkjujarðasjóður eða Ræktunarsjóður eða eitthvað annað, kemur það alt niður á landssjóði. Þetta er því stórt fjárhagsatriði, og hefði álit fjárveitinganefndar átt að fylgja þessu frv. Mjer er óhætt að fullyrða, að háttv. frsm. (J. J.) er ekki eins ánægður með 3. kafla þessa frv. og sitt frv. frá byrjun, en jeg skal endurtaka, að ef spurningin er að eins um að hindra sölu jarða til útlanda, er væntanlega vel forsvaranlegt að setja lík ákvæði, en tæplega annars.