28.08.1917
Neðri deild: 45. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 921 í C-deild Alþingistíðinda. (3264)

159. mál, forkaupsréttur á jörðum

Frsm. (Jón Jónsson):

Jeg þarf ekki að fara mörgum orðum um frv. að þessu

sinni, með því að það hefir verið svo mikið rætt áður hjer í deildinni. Engar brtt. liggja fyrir, sem máli skifta. Jeg sje því ekki ástæðu til þess að fjölyrða um málið, nema mótmæli komi fram.