28.08.1917
Neðri deild: 45. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 927 í C-deild Alþingistíðinda. (3267)
159. mál, forkaupsréttur á jörðum
Frsm. (Jón Jónsson):
Jeg get ekki annað sagt en að mjer finst hálfeinkennileg afstaða háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) í þessu máli. — Eins og mönnum er kunnugt kom sú stefna fram hjer á þingi, að efla sjálfsábúð, eftir því sem föng væru á. Og það, sem vakir fyrir landbúnaðarnefnd í þessu máli, er einmitt að tryggja það, að sem flestir eigi þær jarðir, sem þeir búa á. Og hygg jeg, að ekki sje auðvelt að búa öllu betur um það en hjer er gert En ef nú, einhverra ástæðna vegna, er ekki hægt að koma því þannig fyrir, þá er meiningin að stuðla að því, að sveitarfjelög eða landssjóður sitji fyrir kaupunum, fremur en einhver annar. Í þessu skyni voru forkaupsrjettarlögin gefin út 1905, og að þessu stuðlar þessi kafli laganna, sem um það fjallar. Eins og menn vita þá hefir sjálfsábúð aukist mikið síðan lögin um sölu kirkju- og þjóðjarða voru sett. En auðvitað getur altaf komið fyrir, að jörð losni úr sjálfsábúð við og við. Og mjer er kunnugt um það, að í kjördæmi háttv. 2. þm. Árn. (E. A.) eru einstakir menn, sem leggja mikið kapp á að sölsa undir sig sem mest af jörðum, hvort sem nú það á nokkuð skylt við, að háttv. þm. (E. A.) er móti þessu frv. En jeg hygg, að flestir sjeu mjer sammála um, að slíkt sje ekki æskilegt, og að það heyri einmitt undir löggjafarvaldið að sporna við því.
Háttv. sami þm. (E. A.) var að tala um, að þetta gengi fullnærri eignarrjetti manna, og væri gott, ef það bryti ekki í bága við stjórnarskrána. En jeg verð að segja það, að þótt aldrei nema hjer sje um höft á jörðum að ræða, þá varðar þetta þó almenningsheill, að sem best sje búið á jörðum og þeim sómi sýndur. Það hlýtur öllum að vera það ljóst, að það er meiri trygging fyrir því, að vel sje hlúð að jörðinni, ef sá á hana sjálfur, sem býr þar, heldur en einhver og einhver, sem má ske hugsar ekki um annað en láta hana ganga kaupum og sölum. — Þetta felst í 2. kafla, og jeg get ekki skilið, að það sje svo illa frá gengið, að ekki megi við una. Hann er alveg í samræmi víð forkaupsrjettarlögin, og er alveg bráðnauðsynlegur, Því undarlegra er það, að háttv. 2. þm. Árn. (E. Á.) sje á móti þessu. Jeg hjelt, að hann væri sömu skoðunar og við í nefndinni, að sjálfsábúð væri í alla staði holl. — Þá er loks 3. kafli, sem er sjálfsagt þýðingarminstur, en þarf þó ekki að vera ónauðsynlegur. Því að með þessu móti getur landssjóður eignast jarðir, sem eru í höndum einstakra manna, sem má ske fara misjafnlega með þær. Og það er ætlast til, að landssjóður selji því að eins jarðir, að sjálfur ábúandi sje sá, sem kaupir. Ef nú þetta verður að lögum, þá er gengið eins hyggilega og hægt er frá því, að landssjóður eigi þær jarðir, sem ekki eru í sjálfsábúð. Því að það getur engum blandast hugur um, að það er óholt fyrir landið og þjóðina, að jörðum sje haldið í svo háu verði, að einstakir menn geri sjer að fjeþúfu að braska með þær kaupum og sölum.
Jeg get því ekki fallist á, að andmæli þessi sje á rökum bygð. Það, sem háttv. 2. þm. S.-M. (B. St.) sagði, var endurtekning á orðum háttv. 2. þm. Árn. (E. A), og skal jeg ekki fara út í það. En það virðist undarlegt af honum (B. St.), sem er hlyntur sjálfsábúð, að andmæla svona löguðu frv., en ef til vill þykir honum ekki nóg rækt lögð við frv. sitt um erfðaábúð, og er þá líklega að hefna sín á landbúnaðarnefnd. En þessi hefnd kemur ekki niður á rjettum stað.