03.09.1917
Neðri deild: 50. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 958 í C-deild Alþingistíðinda. (3291)

176. mál, vitabyggingar

Frsm. (Matthías Ólafsson):

Jeg gat þess við 1. umr., að ekki væri ljóst í staflið c. í 2. gr., við hvert Reykjanes væri átt, hvort heldur Reykjanes við Faxaflóa eða Reykjanes við Húnaflóa. Jeg hjelt þá, að átt væri við Reykjanes við Húnaflóa, en nú hefi jeg fengið þá leiðbeining hjá vitamálastjóranum, að átt væri við Reykjanes við Faxaflóa, og í samræmi við þetta er brtt. á þgskj. 664 komin fram.

Þá hefir háttv. þm. Stranda. (M. P.) komið fram með brtt. á þgskj. 684, sem jeg býst við að hann taki aftur, en haldi þá fram brtt. sinni á þgskj. 737, og hef jeg ekkert við hana að athuga og ekki heldur sjávarútvegsnefndin, með því að hjer er að eins um væntanlega tilfærslu að ræða, og einmitt í þá átt má búast við óskum frá mönnum. Jeg vil þess vegna mæla með þessari brtt.

Jeg hefi annars ekki annað að segja en það, sem jeg sagði við 1. umr. Jeg álít nauðsynlegt, að framkvæmdir verði í málinu og vænti, að frv. njóti sömu hylli sem áður.