03.09.1917
Neðri deild: 50. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 962 í C-deild Alþingistíðinda. (3295)
176. mál, vitabyggingar
Einar Arnórsson:
Bæði vitamálastjóri og hv. sjávarútvegsnefnd eiga þakkir skilið fyrir að hafa athugað þetta mál og lagt það hjer fyrir þingið, því að hvernig sem kann að fara með afgreiðslu þessa máls nú, þá verður ekki annað sagt en að það sje heppilegt fyrir stjórnina að hafa þennan grundvöll til að byggja á. — En mjer virðist, að þó að hv. sjávarútvegsnefnd hafi haft nægan tíma til að athuga þetta mál, þá hafi aðrir hv. þm. ekki haft tóm til þess, svo sem æskilegt væri, þar sem hjer er um svo umfangsmikið mál að ræða. Hins vegar hefir líka komið í Ijós hjá hv. 1. þm. G.-K. (B. K.), sem, eins og menn vita, hefir til skamms tíma átt sæti í stjórn landsins, og auk þess er fulltrúi fyrir eitthvert mesta útgerðarhjerað landsins, að hann telur málið ekki nægilega vel undirbúið. Auk þess eru litlar líkur til, að vitar verði bygðir í nánustu framtíð, meðan svo erfitt er um efni til þeirra og aðflutninga vegna stríðsins, svo að það mundi ekki skaða málið neitt, þó að það biði nokkurn tíma. Enn fremur er það að athuga, að alt virðist benda á, að þing verði haldið að sumri. Og svo framarlega sem stríðinu verður lokið þá, má taka til óspiltra málanna um vitagerðir, enda er sjálfsagt, að stjórnin athugi málið og undirbúi, svo fljótt sem verða má. Samkvæmt þessu leyfi jeg mjer að bera fram rökstudda dagskrá, sem hljóðar svo:
Í því trausti, að landsstjórnin undirbúi málið, í samráði við vitamálastjóra, Fiskifjelag Íslands og aðra hæfustu menn, og leggi, svo fljótt sem unt er, frumvarp um vitagerð hjer á landi fyrir Alþingi, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.
Jeg vildi taka það fram, áður en jeg afhendi dagskrána, að jeg ætlast til, að stjórnin láti það ekki undir höfuð leggjast að rannsaka og undirbúa þetta mál, heldur gangi að því sleitulaust og leggi það fyrir Alþingi eins fljótt og auðið er.