23.08.1917
Neðri deild: 41. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í B-deild Alþingistíðinda. (33)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Pjetur Þórðarson:

Það er líklega rjett að vera þakklátur, þegar gert er það, sem gera átti, og látið ógert það, sem ekki átti að gera. Jeg mun því mega vera þakklátur háttv. samgöngumálanefnd fyrir tillögur hennar í heild sinni um bátaferðir kringum landið. Jeg þykist mega fullyrða það, að það, sem gerir mikla bót á örðugleikunum, sem af dýrtíðinni stafa, er einmitt þetta, að gera samgöngur allar sem greiðastar, því að bættar samgöngur eru fyrsta og besta skilyrðið fyrir því, að þjóðin geti borið áfram þá miklu örðugleika, sem hún á nú við að stríða. Þess vegna vil jeg lýsa yfir því, að jeg er nefndinni sammála um það að láta telja nokkurn hluta útgjaldanna nú til dýrtíðarráðstafana, sem sje þau, sem ganga til vegabóta, og eins þau, sem ganga til að bæta samgöngur kringum landið, og er jeg yfirleitt hlyntur þeirri stefnu.

Jeg stóð annars upp til þess að mæla lítið eitt með brtt. ofurlítilli, sem jeg á á þgskj. 549, þar sem farið er fram á að bæta einum vjelbát við á Faxaflóa, til þess að fara ferðir vestur á Mýrar, sjerstaklega á þær hafnir, sem lengi stóðu á áætlun þess báts, sem haft hefir Faxaflóaferðirnar, þótt nú upp á síðkastið hafi þær verið teknar út af þeirri áætlun. Þessi brtt. gengur í sömu stefnu sem brtt. háttv. samgöngumálanefndar, og mætti jeg þá ef til vill búast við því, að hún ljeði minni brtt. fylgi, þótt jeg hafi síðla komið fram með hana, einkum fyrir þá sök, að farið er fram á svo lítið fjárframlag. En nú hvíslar háttv. framsm. þeirrar nefndar (B. Sv.) því að mjer, að hann hafi gleymt að tala á móti þessari brtt. minni, svo að jeg þykist þá vita, að nefndin hafi horfið að því ráði að andæfa henni. Þetta er ef til vill viðtekin regla hjá nefndunum, að þótt brtt. sjeu jafnrjettmætar sem brtt. nefndanna sjálfra, eftir aðalstefnunni, þá leggi þær samt á móti þeim, ef þær koma frá einstökum þingmönnum. Þetta þykir mjer nú auðvitað ekki lofsvert, og þótt jeg þess vegna geri mjer ekki vonir um, að þessi brtt. mín verði samþykt, þá vil jeg samt lýsa því með örfáum orðum, hvers vegna jeg tel brtt. mína sanngjarna og í raun og veru sjálfsagða. Jeg vil geta þess, vegna þeirra, sem eru ókunnugir á Mýrunum, að það sjerkennir þær, að samgöngur eru þar í raun og veru ómögulegar bæði á sjó og landi, nema miklar bætur verði þar á ráðnar. Ef jeg mætti nú velja um samgöngubætur þar, þá mundi jeg 10 sinnum heldur kjósa, að þær yrðu gerðar á landi, með því að það mundi koma að hagkvæmari notum. En með því að það liggur nú ekki fyrir, þá er ekki um það að tala. En hjer er þá að ræða um ofurlitla tilraun til þess að bæta lítils háttar samgöngurnar á sjó. Þær samgöngur eru mjög miklum örðugleikum bundnar. Þar er útfiri mikið, alt að því 4 sjómílur út frá landi. Meðan báturinn kom að Straumfirði og Ökrum þá var hann oftast látinn fara beina leið, að minsta kosti suður. En það þarf ekki að muna miklu, að slíkar sjóferðir farist alveg fyrir, þegar um mikinn sjógang er að ræða, enda er ekki ætlast til þess, að stór bátur verði látinn hafa þessar ferðir á hendi, heldur smábátur, ca. 15 smálesta. Meðan Mýrarnar stóðu á áætlun Faxaflóabátsins, var mikil vanræksla sýnd í þessum ferðum; t. d. átti báturinn að koma upp eftir 14. eða 15. septbr. 1909 og hafa meðferðis miklar vörur, en þetta fórst fyrir, vegna veðurlagsins, og komst báturinn ekki með þennan flutning fyr en 31. desbr. sama ár, og voru þá sumar vörurnar glataðar, í þeim skilningi, að þær votu orðnar að óþverra innan um annan farm bátsins. Jafnvel þótt sterkar ástæður þyrfti til þess að mæla með því, sem í svipinn getur ekki fengið meðhald nefndarinnar eða þingmanna, þá get jeg ekki samt látið vera að minnast á þetta, því að það gæti ef til vill komið að notum síðar, og auk þess er jeg ekki vonlaus um, að háttv. þd. geti gengið að þessari brtt. minni. Jeg skal um leið geta þess, að á landleiðinni til Borgarness eru og hinir verstu farartálmar, sem í rauninni enginn getur gert sjer í hugarlund, nema sá, sem farið hefir um þar. Hjer er því við ramman reip að draga. Þó hafa upp á síðkastið verið gerðar tilraunir til þess að bæta úr þessu samgönguleysi, og jeg ímynda mjer, að þeir tímar geti komið, að það geti jafnvel borgað sig að hlynna að samgöngum á þessu svæði. Gnægtir efna liggja þar fyrir, þegar farið verður að gera gangskör að því að nota auðsuppsprettur landsins, svo að búast má við, að það gæti beint borgað sig, jafnvel fyrir landssjóð sjálfan,

t. d. á næsta fjárhagstímabili eða á tiltölulega skömmum tíma, að minsta kosti með því, hvað menn yrðu betur settir. Annað mál er það, að jeg álít, að sanngjarnt væri, að betur yrði gengið frá þeim skilyrðum, sem sett eru fyrir ferðum þessara báta og ekki væri alveg látið afskiftalaust, hvernig þessir styrkir væru notaðir eða hvort fullnægt er þeim skilyrðum, sem sett eru í fjárlögin.

Jeg er enn fremur með háttv. þm. Borgf. (P. O.) meðflutningsmaður að lítilli brtt. um að veita ofurlítið hærri styrk til Hvítárbátsins heldur en samgöngunefndin ætlast til. Það er svo með þennan bát, að jeg viðurkenni, að nauðsyn hans hafi að nokkru leyti fallið niður eftir að flutningabrautin, svo nefnd Borgfirðingabraut, kom, sjerstaklega eftir að hún komst alla leið upp að Kláffossbrú, en samt eru það 3—4 hreppar í Borgarfjarðarsýslu, sem væri það óþægilegt, að þessar ferðir fjellu niður, nema þá að brú kæmist á Hvítá, eins og háttv. þm. Borgf. (P. O.) tók fram. Svo að það er alveg jafnnauðsynlegt og sanngjarnt, að þessi litli styrkur haldist enn til þessara bátsferða sem til annara, og verði nú ekki feldur niður.

Í sambandi við þetta ætla jeg rjett að minnast á brtt. samgöngumálanefndar, sem sje 1. liðinn í sambandi við tvo síðustu liðina á þgskj. 487. Samgöngumálanefnd leggur til, að veittar verði 18 þús. kr. til ferða á Faxaflóa. Nú vildi jeg beiðast skýringar hjá nefndinni á því, hvort hún hugsi sjer, að eitthvað af þessum styrk gangi til aukaferða, innanfjarðarferða um flóann. Jeg þykist hafa ástæðu til að ætla, að svo hafi ekki verið. En ef stjórninni heimilast að verja einhverju af þessari upphæð á annan hátt en til aðalbátsferðanna, þá gætu þessar mótorbátaferðir komið til mála, þótt jeg sje hræddur um, að það mundi aldrei blessast að skifta styrknum.

Það er ekki meining mín að fara að víta gerðir fjárveitinganefndar í þessu eða öðru, en það er þó eitt atriði í brtt. nefndarinnar, sem mjer þætti mikilsvert að fá upplýsingar viðvíkjandi. Það er fjárveiting undir tölulið 47, þar sem svo hljóðandi aths. fylgir:

»Af þessu fje má verja nokkurri upphæð til þess að gera færan vetrarveg yfir Almannaskarð. Skal það gert eftir rannsókn vegamálastjóra og tillögum hans«.

Jeg minnist þess ekki að hafa heyrt talað um þessa vetrarvegi áður. Og þar sem nú svo stendur á hjá okkur vestur á Mýrum, að oft eru þar mestu vandræði, sakir vegleysu sumar og vetur, þá vildi jeg beiðast skýringar á því, hvernig menn hugsuðu sjer þessa vetrarvegi.

Mjer finst, að ekki væri nema sanngjarnt, að við fengjum að njóta góðs af þessu hjá okkur, svo framarlega sem vegamálastjóra er treystandi til að gera svona vegi, svo að gagn sje að.