27.07.1917
Neðri deild: 19. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 973 í C-deild Alþingistíðinda. (3316)
84. mál, forkaupsréttur leiguliða o. fl.
Flm. (Jón Jónsson):
Frv. þetta er stutt og einfalt og þarf ekki langra skýringa við. Það, sem fyrir flutningsmönnunum vakir, er það að setja reglur um forkaupsrjett þeirra jarða, sem eru í sjálfsábúð. Um það eru engin lög til, en frv. á að bæta úr þeim skorti. Lögfræðingar hafa bent mjer á, að ekki sje vel viðeigandi að hnýta þessu ákvæði við lögin um forkaupsrjett leiguliða, svo sem frv. ákveður. Jeg skal játa það, að við nánari athugun hefi jeg komist á þá skoðun, að þetta sje athugavert. Jeg hefi þó ekki fundið ástæðu til að taka frv. aftur fyrir þessa sök, teh leyfi mjéir aB ljggja til, að því verði vísað til nefndar, ejns og það er, enda er hægurinn hjá að gera þær breytingar á frv. í nefndinni, sem nauðsynlegar þykja.
Við flutningsmennirnir lítum svo á, að það geti orðið skaði fyrir ræktun landsins og húsabætur, ef ekki er höfð hönd í bagga með því, hvað verður um jörð, sem gengur úr sjálfsábúð. Eins og nú er ástatt geta einstakir menn gert sjer það að fjeþúfu að eignast svo og svo margar jarðir, til þess að versla með þær eða okra á þeim á einhvern .hátt, og þess munu dæmi, að það sje gert. Við teljum því heppilegra, að það væri trygt með lögum, að sveitarfjelögin hefðu forkaupsrjett að þeim jörðum, sem enginn kaupandi fæst að, er sjálfur ætlar að búa á jörðinni. Þetta er kjarninn í frv., og vænti jeg, að háttv. deild líti á það og finni, að það er ekkert ósanngjarnt, sem fram á er farið.
Það er óneitanlega betra, að jarðir verði eign sveitarfjelaganna, heldur en að þær lendi í braski. Jeg sting upp á, að frv. verði vísað til landbúnaðarnefndar og tekið þar til athugunar. Annars er málið ekki svo flókið, að miklar umræður þurfi.