10.08.1917
Neðri deild: 30. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 979 í C-deild Alþingistíðinda. (3326)
84. mál, forkaupsréttur leiguliða o. fl.
Gísli Sveinsson:
Háttv. nefnd þykir það sjálfsagt til bóta að hafa komið fram með sjerstakt frv. um þennan forkaupsrjett. Þó er athugavert, að komin eru fram á þessu þingi tvö frumvörp um forkaupsrjett á jörðum, og ef bæði frv. hv. landbúnaðarnefndar yrðu að lögum, myndum við hafa þrenn lög um forkaupsrjett hjer í landi. Jeg játa það, að málið hefir að sumu leyti tekið umbótum í höndum hv. nefndar, en þó virðist það enn þurfa nánari íhugunar, og hvað sem öðru líður, þá er það mesta ómynd að hafa þrenn sjerstök lög um forkaupsrjettinn, það er að segja, lög um forkaupsrjett leiguliða, lög um forkaupsrjett sveitarfjelaga og lög um forkaupsrjett landssjóðs. Þetta eru alt lög, sem almenning varðar mikið að þekkja vel, og væri sjálfsagt einfaldara og ruglingsminna fyrir notendur, að öll þessi skyldu lög væru dregin saman í eitt. Vildi jeg því skjóta því til hv. nefndar, hvort hún vilji ekki taka málið til nýrrar íhugunar, og meðal annars athuga, hvort hún sjái sjer ekki fært að búa til eitt frv. um forkaupsrjett jarða yfirleitt, og nema þar með úr gildi þau lög, er nú eru, en vera ekki að greina það sundur í mörgum lagaboðum, eftir því, hver forkaupsrjettinn á.