05.07.1917
Neðri deild: 3. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 738 í B-deild Alþingistíðinda. (333)

13. mál, einkasöluheimild landsstjórnarinnar á steinolíu

Benedikt Sveinsson:

Jeg kann stjórninni þakkir fyrir það að hafa lagt þetta frumv. fyrir þingið og taka svo til greina höfuðatriði frumvarps þess, sem jeg ásamt fyrra þm. Reykv. (J. B.) bar fram á aukaþinginu í vetur. Það hefir komið jafnvel enn betur í ljós síðan, hver nauðsyn er að koma þessu máli í gott horf.

Öllum er kunnugt, hvert ólag hefir verið á þessari verslun. Vjer höfum lent í einokunarklóm, og fjelagið, sem fyrir nokkru tók að sjer steinolíuverslunina og kallar sig »íslenskt steinolíufjelag«, er eitthvert hið illræmdasta fjelag, sem þekst hefir hjer um undanfarin ár, enda er ekki góðs af von, þar sem fjelag þetta er hamskiftingur af

»D. D. P. A.« og afspringur af rót hins alræmda einokunarfjelags Rockefellers. Fjelagið setur mönnum afarkosti, skuldbindur menn með skriflegum skuldbindingum til þess að versla ekki annarsstaðar, án þess þó að setja nokkra tryggingu fyrir því að geta haft næga steinolíu, bregst meira að segja algerlega að birgja landið að olíu þegar allra verst gegnir; fjelagið lætur sjer nægja að auglýsa, að það eigi von á skipum þá og þegar og varar menn við því að kaupa steinolíu annarsstaðar, en oft hafa þessi skip alls ekki komið og jafnvel sannast, að sumar slíkar auglýsingar voru blekkingar einar, til þess að aftra framkvæmdum annara um útvegun vörunnar. Menn mundu því hafa orðið nauðulega staddir, ef ekki hefðu getað leitað til landsstjórnarinnar eða einstakra manna, sem haft hafa framkvæmdir í þessa átt. Það væri vissulega full þörf og nauðsyn á að setja lög gegn slíku ofríki í viðskiftum, sem fjelag þetta hefir beitt, og leggja bann við því, að menn sjeu bundnir þannig á einokunarklafa. Slíkir samningar ættu ekki að hafa neitt gildi, og að minsta kosti ættu einokrarnir ekki að sleppa við ábyrgð, er þeir bregðast svo herfilega, sem hjer er raun á orðin.

Þó að frumv. þetta sje góðra gjalda vert, þá þykja mjer nokkrir verulegir gallar á því, og vil jeg fara um þau atriði fáeinum orðum.

Samkvæmt 1. gr. frumv. veitist stjórninni heimild til þess að kaupa nægilega steinolíu handa landinu, og síðar er sagt, að meðan stjórnin notar heimildina sje engum öðrum leyfilegt að flytja hingað steinolíu nema með sjerstöku leyfi hennar. Enn fremur segir, að stjórnin megi þá fyrst nota þessa heimild, er hún hafi komist að traustum samningum við verslunarhús um olíukaupin, með frekari skilyrðum. Hjer þykir mjer stjórnin eigi vera nægilega skelegg. Sjálfsagt er að fara með fullri gát að þessu máli, sem öðrum, og búa vel um hnútana, en það mundi einmitt best gert með því, að stjórninni einni væri nú þegar fengin einkaheimild til innflutnings á olíu. Ef stjórnin gæti eigi þegar aflað nægilegrar olíu, sakir þess hve erfitt er um skipakost, þá væri hægurinn hjá að veita öðrum »sjerstakt leyfi«, eins og að orði er komist í 2. gr. frumv. En jeg hygg, að landsstjórnin standi þeim mun betur að vígi en aðrir, er hún hefir fengið einkaheimildina í hendur, að ekki þurfi að bera kvíðboga fyrir því, að fremur standi á olíuflutningum hingað eftir en áður. Stjórnin hefir fengið allmikið af olíu til landsins og mundi hafa komið í veg fyrir þann stórhnekki, sem vjer höfum beðið af olíuskorti í vor, ef hún hefði ekki oflengi. treyst á »íslenska« steinolíufjelagið. Margir trúðu því og treystu, að fjelagið efndi heit sín, og þar af hlutust vandræðin. Þessu verður að afstýra. Því verðum vjer að leggja áherslu á það, að stjórnin taki málið sem fyrst í sínar hendur afdráttarlaust. Þarf hjer bæði snör og hörð handtök. Nú vill líka svo vel til, að hjer er staddur Íslendingur úr Vesturheimi, viðskiftafróður maður, mikilhæfur, sem fáanlegur mundi til þess að sjá um samninga fyrir landsins hönd, því að sjálfsagt mundi heillavænlegast að semja um olíukaup við eitthvert fjelag vestan hafs. Jeg álít mjög misráðið, ef ekki yrði notuð aðstoð þessa manns, og vil beina því bæði til nefndarinnar og stjórnarinnar, að athuga vel þetta atriði.

Sumir tala um, að nauðsynlegt sje að hafa hjer olíugeyma og flytja olíuna hingað í lestarhylkjum. Það getur verið, að hentugt sje að hafa hjer olíugeymi, en ekki má það standa fyrir framkvæmd þessa máls, enda eru annmarkar á þeim flutningum. Hingað til hefir öll olía verið flutt til landsins í tunnum. Það getur verið hentugra að hafa olíuna altaf á tunnum, vegna þess, að þannig verður greiðast um afgreiðslu hennar út um landið.

Jeg get ekki verið samþykkur því að leggja svo hátt gjald, 6 %, á þessa vöru, eins og til er tekið í 3. gr. frv.; með því móti yrði skatturinn því hærri sem olían yrði dýrari. Nú er ekki að vita, nema framleiðslulöndin leggi útflutningsgjald á þessa vöru, til þess að ná í fje upp í herkostnaðinn, á sama hátt sem Bretar lögðu skatt á kol eftir Búastyrjöldina og fullvíst er, að þeir muni gera að þessum ófriði loknum. Skatturinn mundi koma ójafnt og órjettilega niður; af tvennu illu væri þá skárra, að eitthvað víst væri lagt á hverja tunnu, en yfir höfuð get jeg engan veginn fallist á að taka upp þá stefnu að búa þann veg til tekjulind handa landssjóði. Hitt er sjálfsagt, að búa vel um hnútana, tryggja landssjóð fyrir áhættu.

Þá þykir mjer einnig vanta ákvæði um það, hvað gera eigi við olíubirgðir þær, sem til eru, þegar þessi verslun hefst. Um það þyrfti skýr ákvæði í lögin. Ekki er heldur glögt orðalag 7. gr.; helst er svo að sjá, sem lagt sje til að afnema allan vörutoll, en vafalaust mun að eins átt við toll af steinolíu. Þetta mun nefndin lagfæra.

Annars á nú ekki við að fara út í einstakar greinar; að eins vildi jeg hafa bent á þetta til athugunar nefndinni.