10.08.1917
Neðri deild: 30. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 982 í C-deild Alþingistíðinda. (3335)

98. mál, forkaupsréttur landssjóðs á jörðum

Frsm. (Jón Jónsson):

Þetta frv. gengur í líka átt og frv. um forkaupsrjett leiguliða á jörðum. Það ætlast til þess, að þegar hvorki viðtakandi jarðar nje hlutaðeigandi sveitarfjelag vill nota forkaupsrjett sinn að jörðu, sem selja á, þá skuli jafnan skylt að bjóða landsstjórninni forkaupsrjett á jörðinni fyrir landssjóð. Þetta alt á að fyrirbyggja brask með jarðir, og stuðla að því, að sem flestir geti orðið sjálfseignarbændur í landinu. Skal jeg svo leyfa mjer að gera stutta grein fyrir breytingum þeim, sem nefndin hefir gert á frv. því, sem henni var fengið til athugunar.

Í 1. gr. er engin efnisbreyting; að eins er slept úr ákvæðinu um jarðir, sem seldar hafa verið eftir sjerstökum lögum, því að það er óþarft að taka það upp, með því að ákvæðin um sölu annara ná líka til þeirra, þótt eigi sje það sjerstaklega tekið fram.

Í 2. grein er sú efnisbreyting, að þar sem í frv. er ætlast til, að landsstjórnin tilkynni hlutaðeiganda innan mánaðar, hvort hún vilji, að landssjóður neyti kauprjettar síns, þá gerir brtt. nefndarinnar ráð fyrir, að landsstjórnin afli sjer nauðsynlegra upplýsinga um jörðina og sannvirði hennar, áður en hún svarar. Nefndinni þótti sjálfsagt, að tekið væri fram, að þetta væri gert; hitt óviðkunnanlegt, að hún þyrfti ekki að gera það áður en hún tæki ákvörðun um það, hvort hún vildi kaupa jörðina. Þá er og slept úr 2. gr. ákvæðinu um, að landsstjórnin skuli láta mat fara fram á jörðinni, ef landsstjórnin ákveður að kaupa jörðina. Nefndin leit svo á, að mat þetta mundi sjaldan hafa nokkra þýðingu, heldur mundi kaupverðið að jafnaði geta farið eftir samningum milli kaupanda og seljanda, án nokkurs fyrirskipaðs mats, alveg eins og á sjer stað um aðra jarðasölu og kaup. Stjórnin getur og mun að jafnaði fá einhvern mann, sem hún treystir vel, til að fullgera fyrir sig jarðakaupin. Auðvitað er henni innan handar að láta mat fara fram þegar henni sýnist þess þörf, þótt það sje ekki beint fyrirskipað í lögunum. Það, sem eftir er af breytingunum, eru orðabreytingar, nema hvað nefndin leggur til, að síðasta grein frv. falli burt. Nefndin álítur enga þörf á að takmarka heimild stjórnarinnar til að kaupa þær jarðir, er henni kunna að bjóðast. Það er ekki líklegt, að landssjóður öðlist að jafnaði kauprjett á mjög mörgum jörðum á ári, og þótt það kæmi fyrir, að verja þyrfti meiru fje en 100.000 kr. til jarðakaupa eitthvert ár, þá má telja óhætt að láta stjórnina hafa vald til þess, en ekki jafnan rjett að banna að kaupa fyrir meira, hvernig sem á stendur. Loks höfum við lagt til, að skotið væri inn í frv. nýrri grein, til þess að tryggja það, að eigi væri farið kringum lögin; og vonar nefndin, að hún sje til bóta.