05.07.1917
Neðri deild: 3. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í B-deild Alþingistíðinda. (336)

13. mál, einkasöluheimild landsstjórnarinnar á steinolíu

Benedikt Sveinsson:

Jeg stend aðallega upp til þess að girða fyrir misskilning, er mjer þótti kenna í ræðu hæstv. fjármálaráðherra (B. K.), viðvíkjandi þeim erindreka, er jeg gat um að fáanlegur kynni að vera.

Hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) kvað stjórnina engan millimann vilja hafa. En það rekur sig ekki á tillögu mína, því að þessi umtalaði maður ætlar ekki að semja við stjórnina sem kaupmaður og leggja á olíuna hundraðsgjald sjer til handa, eins og hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) óttaðist, heldur kæmi hann auðvitað fram sem erindreki landsins, án þess að honum dytti í hug að fara fram á slíkt endurgjald. Því fjarlægara er það, að maður þessi sje að »bjóða þjónustu sína« til þess að verða »millimaður« — »kann ske upp á lífstíð«. Hitt er höfuðatriðið, að maður sá, er jeg ræði um, hefir fullan vilja á að verða Íslandi að liði og helga því krafta sína, enda hefir hann áður gengið vel og drengilega fram í erindum þjóðar vorrar vestan hafs, án þess að fá eyri fyrir. Hann ætlar sjer, ef stjórnin vill nota starfskrafta hans, að beita sjer fyrir því að koma þessum viðskiftum í fast horf.

Hæstv. fjármálaráðh. (B. K.) sagði, að stjórnin mundi semja sjálf, en jeg býst þó varla við, að ráðherrarnir ætli sjálfir að fara til Vesturheims til samninga, og efast mjög um, að betra sje að taka tilboði einhvers kaupmanns, sem vill útvega sambönd, heldur en að fá kunnugan og margreyndan atorkumann til þess að gera samninga vestan hafs fyrir landsins hönd.

Jeg vil taka það fram, að hjer er um engan »spekúlant« að ræða, er ætli sjer að pranga á steinolíunni sjer í hag.

Viðvíkjandi því, er háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) sagði um álagninguna, sem hann var hlyntur, get jeg endurtekið það, sem jeg sagði í vetur, að þessi skattur getur komið ranglátlega niður á útgerðarmenn. Þegar tveir bátar stunda veiðar og eyða jöfnu af olíu, getur annar veitt mikið og haft góðan hagnað, en hinn svo lítinn, að hann verði fyrir stórtjóni. Hvortveggi á að borga jafnan skatt í landssjóð. Jeg vil láta þetta afl framkvæmdanna vera sem minstum gjöldum háð, en hækka þá heldur útflutningsgjaldið, ef nauðsyn krefur.

Jeg er á sömu skoðun og háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) viðvíkjandi endurskoðendunum, og tel heppilegt, að ákvæði frv. væri breytt. Jeg held, að best væri, að Alþingi kysi annan og Fiskifjelag Íslands hinn, því að fyrir það fjelag skiftir miklu máli, að verslunin sje í lagi.

Jeg vil að lokum árjetta það, að jafnvel þótt landsstjórnin gæti ekki tekið alla verslun með steinolíu í sínar hendur strax, þá ætti hún þó að hafa einkarjett til innflutnings á allri olíu, eftir að lögin öðlast gildi. Það getur orðið erfitt, ef útlend auðfjelög, eða þótt þau kalli sig íslensk, fara að gera ýms mannvirki nú, til þess að gera landsstjórninni örðugt fyrir að takast einkasöluna á hendur, er hún mundi verða að kaupa slíkar eignir þess fjelags, sem hætti, en nú eru engin mannvirki til, og því mjög hægt um vik. Er því gott að nota þegar tækifærið.