08.08.1917
Neðri deild: 28. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1003 í C-deild Alþingistíðinda. (3362)
122. mál, sala á þjóðjörðinni Höfnum
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Af því að sú ályktun var tekin í stjórnarráðinu, að fresta sölu opinberra jarðeigna til þings, hefi jeg ekki farið í gegnum þann bunka af umsóknum, er fyrir liggja, en það mun nú gert við fyrstu hentugleika. Jeg get ekki, fremur en hæstv. forsætisráðherra, verið því mótfallinn, að málið fari í nefnd. En til þess að nota tækifærið, og af því, að hv. flm. (Þór. J.) taldi, að ábúandi sá, sem hjér er um að ræða, ætti mikinn þátt í bótum þeim, sem jörðin hefir tekið, þá vil jeg biðja hv. flm. (Þór. J.) að skýra nú frá, hver ábúandinn er. (Þór. J.: Ekkjan Jónína Jónsdóttir), (S. S.: í Stykkishólmi!), því að margir kunnugir efast um, að sú, sem talin er fyrir jörðinni, geti eiginlega í venjulegum skilningi verið fyllilega rjett talin ábúandi hennar.