18.08.1917
Neðri deild: 37. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1013 í C-deild Alþingistíðinda. (3369)
122. mál, sala á þjóðjörðinni Höfnum
Frsm. (Jón Jónsson):
Jeg get verið fáorður um frv., því að jeg býst við, að hv. flm. (Þór. J.) taki það aftur. Nefndin getur ekki komist að þeirri niðurstöðu, að rjett sje að gefa út þessi lög. Stjórnin er auðvitað einráð um, hvort hún vill selja þessa jörð, eins og um aðrar þjóðjarðir. Nefndin vill ekki fara út í, hvort nokkuð athugavert sje við ábúð jarðarinnar, því að væntanlega athugar stjórnin það. Vitaskuld er jörðin afskekt, en virðist vera góð, og eftirspurn eftir jörðum er nú mikil, og eftir því, sem meiri hlunnindi fylgja þeim, verður verðið hærra. Jeg skal geta þess, að landbúnaðarnefndin hefir ekki sjerstaklega kynt sjer nýju skjölin í þessu máli, sem eru hjá stjórninni. Þess fanst henni ekki þörf. Annars getur hæstv. stjórn sjálf svarað til um það, hvers vegna hún færði upp verðið á jörðinni, þegar sótt var um kaup á henni.