19.07.1917
Neðri deild: 14. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1015 í C-deild Alþingistíðinda. (3374)

69. mál, sala á ráðherrabústaðnum

Forsætisráðherra:

Jeg vildi leyfa mjer að skjóta því til háttv. flm. (S. S.), hvort ekki væri rjettara að fara aðra leið. Jeg held, að þingsályktun nægi ekki til að selja landseign. Jeg vil biðja háttv. flm. (S. S.) að athuga það, að t. d. þjóðjarðir hafa aldrei verið seldar nema með lagaheimild.