12.07.1917
Neðri deild: 8. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1026 í C-deild Alþingistíðinda. (3399)
41. mál, einkasala landsstjórnarinnar á kolum
Flm. (Jörundur Brynjólfsson):
Jeg býst við að geta verið stuttorður að þessu sinni. Eins og menn muna kom milliþinganefnd 1911 fram með frv. um einkasölu á kolum, sem fór í líka átt og þetta. Menn höfðu ýmislegt út á það að setja, og því varð það ekki að lögum. Ýmislegt, sem menn fundu því frv. til foráttu, er nú felt burt í þessu. Jeg býst því við, að þeir, sem að öðru leyti voru hlyntir því, að landið tæki að sjer einkasöluna, geti felt sig við þetta frv.
Það er einkum tvent, sem jeg tel því til gildis.
Í fyrsta lagi myndi landssjóður hafa allgóðar tekjur af frv., án þess þó, að þeim væri íþyngd, sem kolanna þurfa mest með. Í öðru lagi myndi almenningur fá vöru þessa allmiklu ódýrari en ella. Þetta er ekki sagt út í bláinn. Rannsókn milliþinganefndarinnar 1911 leiddi í ljós, að kol hafa jafnan verið seld töluvert dýrara en þörf hefði verið á, að minsta kosti et kolainnkaupin hefðu verið gerð fyrir hönd landsins í heild sinni.
Milliþinganefndin áætlaði rúman 300 kr. tekjuauka af kolaeinokuninni á fjárhagstímabilinu. Kolainnflutningur fer vaxandi og er því víst, að landssjóður gæti haft 150 þús. kr. tekjur af þessari verslun árlega, 300 þús. kr. á fjárhagstímabilinu. Þessi upphæð er þó eingöngu miðuð við kolasölu til landsmanna sjálfra. Sala til útlendra skipa yrði alveg umfram. Undanfarin ár hafa flust til landsins 100 þús. smálestir: með 1 kr. 50 au. álagi á hverja smálest verða það 150 þús. kr. Álagið gæti verið minna, ef vildi.
Fult eins mikil trygging ætti að vera fyrir því, að varan yrði góð þegar landssjóður flytur inn. Ekki ætti að hræðast, að vandræði yrðu úr verslunarfyrirkomulaginu. Þótt við höfum enga innlenda reynslu við að styðjast, getum við stuðst við reynslu annara ríkja, sem einkasölu hafa haft á einstökum vörutegundum, sem auðvelt er að fara með, og ódrýgjast ekki mjög mikið í meðförunum.
Jeg skal geta þess, að ef gert er ráð fyrir kolainnflutningi svipuðum og hann var 1911, 1912 og 1913, þá greiðir landið árlega nokkuð á fjórðahundr. þús. kr. meira fyrir kolin en greitt mundi vera, ef landssjóður færi með söluna.
Þótt svo sje tekið til orða, að lögin komi til framkvæmda strax að stríðinu loknu, þá er ekki átt við, að landið taki að sjerkolaverslunina hvernig sem á stendur, hve mikill sem skipaskorturinn er og hve erfið sem aðstaða landsstjórnarinnar kann að verða að öðru leyti.
Auðvitað tæki landsstjórnin verslunina ekki í sínar hendur fyr en hún gæli sjeð vel fyrir flutningi kolanna til landsins og öðru, sem með þarf.
Það liggur í hlutarins eðli, að þótt kolaflutningur til landsins sje bannaður, verður skipum leyft að flytja með sjer dálítinn forða handa sjer, og verður ekki við amast, ef ekkert er flutt á land.
Jeg sje ekki ástæðu til að fjölyrða meir um þetta mál. Það er tillaga mín, að því verði vísað til fjárhagsnefndar.