14.07.1917
Neðri deild: 10. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1033 í C-deild Alþingistíðinda. (3403)

45. mál, erfðaábúð

Sveinn Ólafsson:

Jeg skal ekki segja margt um frv., því að enn er ekki tími til þess kominn. Í fljótu bragði finst mjer, að það þurfi umbætur, til að ná tilgangi sínum, og óvíst, að hægt verði að ganga alveg frá því á þessu þingi. Út af því, að háttv. flm. (B. St.) stakk upp á að vísa því til landbúnaðarnefndar, datt mjer í hug, að önnur nefnd væri eins líkleg til að leiða það fram til sigurs, sem sje allsherjarnefnd. Henni treysti jeg best til að ráða fram úr vandanum, sem er á því að endurbæta þetta frv., og til þess þarf fremur lögfræðilega þekkingu en þekkingu á landbúnaðarmálum. Þetta þarf hv. landbúnaðarnefnd eigi að virða til vantrausts. Jeg stóð einkum upp til að reyna að hafa áhrif á nefndarkosninguna, og geri það að tillögu minni, að málinu verði vísað til allsherjarnefndar.

Annars skal jeg, að gefnu tilefni, líka taka það fram, að jeg þekki ekki þessa rangsleitni, sem háttv. flm. (B. St.) segir að leiguliðar eigi við að búa. Jeg veit ekki til, að þeir verði fyrir neinum ókjörum, þótt þeir breyti húsaskipun. Jeg hef ekki sjeð þess dæmi í þjóðjarðaskjölum þeim, sem jeg hefi undir höndum, og held, að það sje afarsjaldgæft. Getur vitanlega hugsast, að einhver sjervitringur hafi einhvern tíma beitt landseta sinn slíkri rangsleitni, en eigi má það venju telja. Að fara að koma með fleiri athugasemdir á ekki við á þessu stigi málsins, en, í fám orðum sagt, álít jeg, að það þurfi talsvert nákvæma athugun og ýmsar umbætur, til að geta náð tilgangi sínum, sem vissulega er góður og þess verður, að fyrir hann sje unnið.