16.07.1917
Neðri deild: 11. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1040 í C-deild Alþingistíðinda. (3417)

58. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Magnús Guðmundsson:

Jeg stend einungis upp til að benda á, að mjer sýnist rjett að vísa þessu máli til samgöngumálanefndarinnar, eins og síðasta máli. Það er um breytingar á sömu lögum, og eigi frumvörp þessi að ganga fram, er sjálfsagt að steypa þeim saman í nefndinni, svo að ekki verði samþykt af þessu þingi tvenn lög um breytingu á sömu lögunum.