04.08.1917
Neðri deild: 25. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1044 í C-deild Alþingistíðinda. (3422)
58. mál, ritsíma- og talsímakerfi
Matthías Ólafsson:
Þegar jeg bar frv. þetta fram, þá vænti jeg þess, að það gengi óbreytt gegnum þingið. Mjer fanst svo mikil sanngirni í því, að skoðanir manna gætu varla verið skiftar um það. Það var og frv. til málsbóta, að hægt var að benda á hliðstæð dæmi, t. d. brjefhirðingastaðina, sem póststjórnin kostar að öllu leyti, með öðrum orðum, að stofnanir, sem notaðar eru í almenningsþarfir, sjeu algerlega kostaðar af þeim, sem nota þær. Ef því er haldið fram, að þessar stofnanir beri sig, þá verða þær að kosta sig sjálfar. En það er rangt að segja, að þær beri sig, meðan þeim er gefið meira eða minna af útgjöldum þeim, sem þurfa til starfrækslunnar.
Þegar jeg sá þetta nefndarálit, þá datt mjer í hug þjóðsögnin úr álfatrúnni gömlu, þegar barni var stolið úr vöggunni, en ljótt álfabarn látið í staðinn, sem þá auðvitað var kallað umskiftingur. Sama er segja um frv. Það er orðið að umskiftingi í höndum nefndarinnar. Það er eins og einhverjir álfar hafi lagt hönd á frv., numið það í burt og skilið eftir annað, miklu ljótara, í staðinn. Jeg verð samt að segja það, að þótt svona illa hafi tekist til með frv., þá mun jeg mæla með, að þessi umskiftingur verði látinn lifa. Af tvennu illu er betra að taka því næstversta heldur en sæta því versta. Jeg greiði því atkv. með breytingu nefndarinnar, þó nauðugur sje. Það gat varla öðruvísi farið fyrir nefndinni en svona, fyrst að hún ráðfærði sig eingöngu við landssímastjórann, sem vitanlegt er að heldur manna fastast við þá kenningu, að láta sveitirnar borga rekstur stöðvanna.
Það gat ekki öðru vísi farið en svo hjá nefndinni, úr því að hún hefir ráðfært sig við þann mann, sem auðvitað var um fyrir fram, að mundi setja sig á móti frv.; jeg á við landsímastjórann. Hann hefir alla tíð verið þeirrar skoðunar, að byrðar landsímans ættu að meira eða minna leyti að hvíla á hjeruðunum, þótt hann telji símann bera sig vel
Jeg vil ekki lá landsstjórninni, þótt hún vilji spara, en hitt mætti hún líta á, að það er lítill sparnaður í rauninni samfara því að láta þann, sem er minni máttar, sýslufjelög og sveitarfjelög, bera gjöld, sem að rjettu eiga að hvíla á landssjóði. Og betra yfirlit fengist yfir þetta mál, ef gjöld og tekjur væru alveg í sama stað.