04.08.1917
Neðri deild: 25. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í C-deild Alþingistíðinda. (3424)

58. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Magnús Pjetursson:

Jeg hefi ekki miklu við það að bæta, sem háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó ) tók frarn. Jeg er alveg á sama máli sem hann, og verð að telja það illa farið, að háttv. frsm. (Þór. J.) skuli hafa snúist á aðra sveif. Að vísu bætir tillaga nefndarinnar dálítið úr því ástandi, sem er, en hún bætir ekki að fullu úr því, að landssíminn hefir verið sveitarómagi, og verður ekki sjeð, að rjettlátara sje það um þessa stofnun en aðrar.

Því hefir verið haldið fram, að með till, nefndarinnar sje landssjóði betur borgið; svo getur þó ekki verið í venjulegum árum, því að afgangurinn af tekjum landssímans á lögum samkvæmt að ganga til nýrra símalagninga; að eins í neyð hefir landssjóði verið leyft að fá fje þetta, svo sem að láni.

Eina ástæðan hjá nefndinni, sem nokkurt gildi hefir, er sú, að frv. mundi tefja fyrir nýjum símalagningum, en jeg legg nú ekki mikið upp úr henni. Fyrst og fremst kemur það undir fjárveitingavaldinu, hvað til þess verður ætlað. Í annan stað, að þótt það dragist að leggja símann, þegar um það er að ræða, að einstakar sveitir borga það, þá er ekkert við því að segja. En hitt má með engu móti dragast, að landið borgi það, sem sveitirnar hafa ranglega goldið í þessu atriði.

Háttv. 1. þm. S -M. (Sv. Ó.) var að tala um halla á landsreikningnum; það getur verið, að við því megi búast, en jeg kann illa við það að jafna þann halla með aukaútsvörum á sveitirnar, því að svo má með rjettu kalla þetta fyrirkomulag.

Jeg skal benda á það, að jeg þekki 3. flokks símastöð, sem gefur af sjer nettó 1.200 kr. um árið, en er þó látin greiða alla starfræksluna.

Háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) sagði, að 3. flokks stöðvarnar mundu vera yfir 100 og kostnaður við hverja um 150–250 kr. á ári. Þetta getur verið rjett um sumar stöðvar, en jeg þekki stöðvar, þar sem kostnaðurinn er ekki nema 25 krónur, og jeg ímynda mjer, að fáar fari fram úr 100 krónum. En hvað sem um það er, þá er hitt óþolandi ranglæti, að sumar sjeu kostaðar af sveitarfjelögum, en sumar af landssjóði. Þó held jeg næstum, að lítið verra sje að halda sama sleifarlaginu áfram heldur en að vera að káka við málið á þennan hátt, sem nefndin vill. En ef svo fer, eins og hv. þm. V.-Ísf. (M.Ó.) komst að orði, að deildin hallast að því næstversta, að till. nefndarinnar, þá mun jeg við 3. umr. koma með brtt. um að færa gjald sveitanna niður.