04.08.1917
Neðri deild: 25. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1051 í C-deild Alþingistíðinda. (3427)
58. mál, ritsíma- og talsímakerfi
Björn Stefánsson:
Það er aðeins eitt atriði, sem jeg vil leyfa mjer að víkja að. Það hefir verið sagt, að sama gilti um símann sem póstgöngurnar, jafneðlilegt væri, að landið borgaði rekstrarkostnað símstöðvanna, sem póstafgreiðslna og brjefhirðinga. En mjer finst þetta ekki alveg hliðstætt. Póstgöngur og póststöðvar eru komnar um alt land og póstafgreiðsla í hverri sveit. Þannig er kominn jöfnuður á um alt land, þótt dálítið misjafnt sje, eftir legu hreppanna. Þess vegna finst mjer líka rjett að gera dálítið upp á milliþeirra hreppa, sem fengið hafa síma, og hinna, sem engan hafa fengið. Það verður ekki nógsamlega lofað það gagn, sem af símanum hefir hlotist, og þegar litið er til þess, þá virðist ekki til ofmikils mælst, þótt þeir landshlutar, sem fengið hafa síma, leggi eitthvað lítils háttar gjald fram í notum þess.
Með þessu vil jeg engan veginn verja órjettlæti og ósamræmi, sem á sjer stað um rekstrarkostnað stöðvanna. Jeg er samþykkur því, að þar sje mörgu ábótavant.
Hv. þm. Stranda. (M.P.) nefndi stöð, 3. fl. stöð, sem gæfi af sjer 1.200 kr. nettó á ári, en þó yrði sveitarfjelagið að borga rekstrarkostnað. Jeg get líka bent á símastöð í Suður-Múlasýslu, sem gefur af sjer 1.200 kr. nettó á hverju ári, og er ekkert fyrir borgað af landssjóði, ekki svo mikið sem lagt til hús. Jeg vil engan veginn mæla þessu bót. En tillögur nefndarinnar miða þó að því að draga úr ranglætinu, en gagnvart þeim, sem hafa ekki enn fengið síma, fer frv. fram á samskonar ranglæti.
En fyrst að jeg stóð upp, þá þykir mjer rjett að benda á eitt atriði, sem líklega er símastjórn að kenna, og það er það, að algengt er, að 3. fl stöðvar, sem eiga að vera opnar 2 klst. á dag, komast alls ekki að þann tíma, sem þeim er ætlaður, vegna þess, að þær stöðvar eru látnar sitja fyrir, sem hafa opið allan daginn. Það mætti nú ekki minna vera en að 3. fl. stöðvar sælu fyrir hinum stöðvunum þann stutta tíma, sem þær eru opnar daglega, þar sem hinar eru opnar allan daginn. Jeg verð að telja þessa ráðstöfun fullkomlega vitaverða, og tel það viðeigandi, að símastjórinn fái aðfinningu um þetta háttalag, einmitt hjer á þessum stað.
Þá greinir menn mjög á um það, hvað sveitirnar jafnaðarlega leggi fram til rekstrar 3. fl. stöðvanna. Einn segir 150–250 kr. og annar 50–70 kr. Þetta er afar mismunandi. Jeg hygg, að algengast sje, að sveitirnar borgi 5060 kr. til 3. fl. stöðva; einstöku hreppar borga jafnvel alls ekkert. En jeg þekki líka dæmi þess, að fyrir eina 3. fl. stöð eru borgaðar 250 kr, en þar eiga fleiri hreppar hlut að máli og leggja saman.