27.07.1917
Neðri deild: 19. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1079 í C-deild Alþingistíðinda. (3453)
65. mál, aðflutningsbann á áfengi
Forsætisráðherra:
Skömmu eftir að núverandi ráðuneyti tók við stjórninni barst stjórnarráðinu brjef frá framkvæmdanefnd stórstúku Íslands. Þar var farið fram á, að stjórnin flytti frv. til líkra breytinga á bannlögunum og fram eru komnar í frv. því, sem nú er til umræðu. Ef háttv. forseti leyfir, skal jeg lesa upp aðalatriðin:
„Framkvæmdarnefnd Stórstúku Íslands af I. O. G. T. leyfir sjer hjer með að skora á landsstjórnina að leggja fyrir næsta reglulegt Alþingi 1917 frumvarp til laga um breytingar og viðauka við lög um aðflutningsbann á áfengi, er í sjeu þau ákvæði, er hjer skulu greind:
1. að fyrirbygð sje sala á hármeðulum og ilmvötnum til drykkjar.
2. að háar og hækkandi sektir sjeu lagðar við því að sjást ölvaður á almannafæri, af hverju sem ölvunin stafar, og fangelsi eftir þriðja brot.
3. að 2. málsgrein 3. greinar í lögum um viðauka og breytingu á bannlögunum 1915 sje úr gildi feld.
4. að enginn maður búsettur á Íslandi megi eftir 1. janúar 1919 eiga nokkrar áfengisbirgðir til drykkjar.
5. að ströng sektarákvæði sjeu lögð við brotum á öllum ákvæðum gildandi laga um aðflutningsbann á áfengi, þar sem þau eru ekki þegar við lögð.
6. að sektarákvæði fyrir brot gegn 1. gr. bannlaganna frá 1909 breytist þannig: Sekt fyrir 1. brot sje kr. 1.500, fyrir 2. brot kr. 2.000, fyrir 3. brot kr. 5.000, og betrunarhússvist sje oftar brotið“.
Svo eru færðar ástæður fyrir þessum atriðum, sem jeg ætla ekki að lesa upp, en brjefið verður fengið í hendur nefnd þeirri, sem málinu verður vísað til. Í öðru brjefi til stjórnarráðsins fór framkvæmdarnefnd stórstúkunnar fram á, að eftirlit með bannlögunum yrði aukið. Ástæðan til þess, að ráðuneytið varð ekki við áskorun stórstúkunnar, um að flytja frv. um breyting á lögum um aðflutningsbann, var sú, að það taldi varhugavert að vera sífelt að breyta þessum lögum. Vera mætti, að hægt væri að bæta þau að einhverju leyti, en þau eru þó ekki svo gölluð, að þau kæmu ekki að notum, ef eftirlitið með að þau sjeu haldin væri eins og það þarf að vera. Það bæri vott um mikið hverflyndi hjá þinginu, ef lögunum væri breytt á hverju þingi, enda mundi það og draga úr trú manna á þau. Menn færu að segja við sjálfa sig við hverja breytingu, sem gerð væri: Ætli nú þessi breyting dugi nokkuð?
Eftir frv. því, sem nú er fram komið, er ætlast til, að slórfje sje veitt til að halda lögunum uppi; að minsta kosti verður ekki annað sjeð af a-lið 4. greinar. Sumstaðar á landinu koma stundum skip svo að tugum og jafnvel hundruðum skiftir inn á einstakar hafnir á einum degi. Ef nú ætti að rannsaka hirslur skipverja og hvern þann stað í skipinu, þar sem ætla má, að áfengi geti verið fólgið, þyrfti til þess fjölda manns. Slík rannsókn væri ókleif nema með miklum tilkostnaði. Nú hafði ráðuneytið ætlað sjer að taka það atriði í tilmælum stórstúkunnar til greina að stuðla að betra eftirliti Til þess var sett nokkur upphæð í fjárlögin; hún er auðvitað ekki nægileg, en þó spor í áttina.
Jeg tel það rjettmætt ákvæði, að menn sæti sektum fyrir að sjást ölvaðir á almannafæri. En það kemur ekki banningunum við. Það er brot á almennu velsæmi, sem fullkomlega rjettmætt er að hegna fyrir.
Vænt þótti mjer að heyra, að einn af flm., háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.), lagði ekki mikla áherslu á, að tekinn sje af mönnum rjetturinn til að eiga vín, sem flutt er inn áður en aðflutningsbannið kom í gildi. Þingið getur varla, sóma síns vegna, tekið aftur það leyfi. Mjer er kunnugt um efnaða borgara hjer, sem einmitt vegna þessa leyfis fluttu inn mikið af áfengi til að geyma sjer. Vitanlega hefir þingið fult vald til að banna mönnum að eiga lengur vínbirgðir, en það gæti varla skoðast öðruvísi en brot á gefnu loforði, ef þessu væri breytt. Í sjálfu sjer er þetta ekki stórt atriði, en varla væri rjett að afnema þennan rjett, nema vissa væri fyrir því, að það væri nauðsynlegt.
Þótt jeg sje að mörgu leyti samdóma háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) um hegningarákvæðin, er jeg ekki samdóma honum um það, að fráleitt sje að leggja betrunarhúsvist við sumum brotum á þessum lögum. Sú hegning ætti vel við um þá menn, sem gera sjer að atvinnu að brjóta lögin og okra á vöru, sem þeir flytja inn með óleyfilegum hætti. En illa kann jeg við, að lagt sje einfalt fangelsi við ýmiskonar brotum á lögum þessum. Það er farið að líta svo á, að stult fangelsisvist sje ekki heppleg hegning. Mjög óheppilegt væri og að hegna fyrir brot með bæði fangelsi og sektum. (E. A.: Það er algengt í þýskum lögum). Jeg býst við, að flestir vildu breyta sektunum í fangelsisvist.
Annars hefi jeg ekki ætlað mjer að mæla frekar á móti frv. Því mun verða vísað til nefndar; sjerstök nefnd væri þó óþörf. Yfir höfuð er það skoðun mín, að forðast eigi sem mest að hafa lausanefndir. Venjulega má finna einhverja nefnd, sem viðeigandi er að málunum sje vísað til. Rjettast væri, að þetta mál gengi til allsherjarnefndar, þótt sá galli fylgi, að hún er ofhlaðin störfum.