27.07.1917
Neðri deild: 19. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1082 í C-deild Alþingistíðinda. (3454)

65. mál, aðflutningsbann á áfengi

Gísli Sveinsson:

Jeg vil lýsa ánægju minni yfir, að hæstv. forsætisráðherra hefir í flestum atriðum komist að sömu niðurstöðu um þetta mál og jeg hefi áður látið í Ijós. Það má búast við, að háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) setji hann, viðurkendan bannmanninn utan þings og innan, á sama bekk og mig. Við sjeum hvorugur mikill bannvinur, heldur sje það af öðrum ástæðum, sem við tjáum okkur vinveitta bannlögunum. Mjer heyrðist jafnvel á tóninum í ræðu háttv. þm. (J. B ), að hann telji okkur jafnvel í tölu bannlagabrjótanna!

Mjer kom það ekki á óvart, að frv. þetta er runnið undan rifjum stórstúkunnar, eins og menn nú hafa heyrt af vörum hæstv. forsætisráðherra. Jeg býst ekki heldur við, að jeg þurfi að taka aftur þau ummæli mín, að það sje komið frá mönnum, sem í þessu máli eru æsingamenn, hvernig sem þeir eru í öðrum, því að svo er það.

Hæstv. forsætisráðherra taldi bannlögin sjálf viðunandi, eins og jeg; ef nokkuð þurfi að bæta, þá sje það eftirlitið. Í því skyni að bæta eftirlitið hefir stjórnin sett inn í fjárlögin sjerstaka fjárveitingu. Jeg vil að eins minnast á, að sjerstakt eftirlit með bannlögunum mundi kosta svo að tugum eða hundruðum þúsunda króna skiftir. Rannsókn sú, sem ætlast er til í frv., gerir ráð fyrir, að sama sem fullkomið tolleftirlit væri hjer í landi, hvar sem skip leggur að.

Jeg skal ekki rekja frekar sektarákvæðin. Háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) virtist sjálfur misskilja ákvæðið um sekt og fangelsisvist. Slík refsiákvæði sem þau, er frv. greinir, eru afkáraleg í löggjöf. Ef um verulega gróf brot væri að ræða, væri betra, að blátt áfram betrunarhúsvist lægi við, og svo auðvitað eigi neinar sektir að auk. En það er tilgangslaust að vera að tala um þessi refsiákvæði; lögin verða brotin eftir sem áður, þótt þyngri hegningar verði lagðar við brotum, — ef þau á annað borð eru eins brotin og þessir menn eru að fullyrða.

Jeg styð þá tillögu, að málinu verði vísað til allsherjarnefndar. (J. B.: Hún hefir ofmikið). Öðrum breytingum á þessum sömu lögum hefir einmitt verið vísað þangað.