14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1100 í C-deild Alþingistíðinda. (3488)

129. mál, brýr á Hofsá og Selá

Magnús Pjetursson:

Af því að mjer skildist, að enginn ætlaði að segja neitt, nema flm. (Þorst. J.), gat jeg ekki stilt mig um að standa upp og lýsa afstöðu minni. Jeg skal játa, að þetta er nokkuð nýstárlegt frv., því að eftir stefnu þingsins áður væri það allmikil stefnubreyting að samþ. þetta frv. Hingað til hefir sýslufjelag varla fengið meira en alt að 1/3 hluta kostnaðar við brýr á sýsluvegum, og er þetta orðinn nokkuð fastur siður. Eftir því, sem stendur í greinargerð frv., er svo að sjá, sem brýr þessar sjeu á sýsluvegi. (M. G.: Hreppsvegi). Nú langar mig til að grenslast eftir, hvað sýslubúar hafa lagt á sig til að bæta þennan farartálma. Það hefir sem sje tíðkast víða, að sýslubúar búa sig undir slík fyrirtæki um margra ára skeið, með því að leggja í brúarsjóð. Jeg þekki eina sýslu, sem búin er að leggja 100 þús. kr. í brýr hjá sjer.

Það getur nú skeð, að frv. þetta sje girnilegra fyrir þá sök, að ekki er farið fram á fjárframlag í þetta sinn. En mjer finst það ekki síður varhugavert fyrir það. Verði þetta frv. að lögum, munu mörg slík á eftir fara. Þarna er verið að smeygja inn litla fingrinum, til þess að fá allar brýr á sýslu- og hreppavegum inn á landssjóðinn, að minsta kosti að þessu leyti.

Mjer finst ekki þakkandi, þótt hv. flm. (Þorst. J.) taki fram, að hann ætlist ekki til, að þessar brýr gangi á undan þeim stórbrúm, sem næst liggja, eins og t. d. brúnum á Eyjafjarðará og Jökulsá á Sólheimasandi, því að mjer finst það ekki sambærilegt. Þar er um þjóðveg að ræða, en hjer sýsluveg, og talsvert meiri þörf, ef miðað er við umferð.

Jeg gat ekki stilt mig um að benda á, hvað á eftir mundi fara, og hvers konar stefnubreyting það væri, ef frv. þetta væri samþ., og vildi ekki, að það gengi orðalaust til næstu umr. Þetta er svo mikilsvert mál, og hjer er ræða um mörg hundruð þús. króna aukin útgjöld fyrir landssjóð í framtíðinni.