23.08.1917
Neðri deild: 41. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 152 í B-deild Alþingistíðinda. (35)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
(Fjármálaráðherra (B. K. ):
Jeg sagði: »Upplýsinga«, ekki »ráða«). Jæja. Það getur vel verið, að nefndin hafi ekki haft ráðherrana í stöðugri samvinnu við sig. En hinu verð jeg að mótmæla, að hún hafi ekki gert það eins og hún gat og átti kost á. Bæði var öll stjórnin og einstakir ráðherrar á nokkrum fundum hjá oss, og auk þess sendum vjer þeim oft brjef, til að biðja þá upplýsinga um einstök atriði. En það hefði hæstv. stjórn líka átt að skilja, að nefndin áleit, að stjórnin gæti ekki tekið það vel upp, að henni væri þrælað út í hverju atriði, og ekki heldur víst, að það hefði flýtt fyrir starfi nefndarinnar. Ef hæstv. ráðherrarnir hafa haft eins mikið að gera og sagt er, er ekki víst, að þeir hefði ætíð haft tíma er nefndin þurfti upplýsinga. Satt að segja gekk ekki heldur svo vel að fá afgreitt sumt af þeim erindum, er nefndin sendi til stjórnarinnar til umsagnar, að nefndinni hlyti ekki að verða það ljóst, að það hlyti að leiða til tafar, ef þeirri reglu væri fylgt út í æsar við hvert eitt.
Eftir því, sem undirtektirnar hafa verið hjer í háttv. deild, vona jeg fastlega, að háttv. þm. sýni með atkvæði sínu, að þeir álíti ekki gegna að skilja við fjárlögin eins og stjórnin gekk frá þeim. Vil jeg þá snúa mjer að þeim einstöku brtt., sem hæstv. fjármálaráðherra
(B. K) mintist á.
Er þá fyrst hagstofustjórinn. Því er lýst yfir í nál., að ráðuneytið hafi fallist á að hækka laun hans. En hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) fann sjerstaklega að hinum öðrum hækkunum, og þá einkum um húsnæðið. Kvað hann þá brtt. fram komna af því, að stjórnin hefði ekki verið að spurð. En stjórnin hefði hugsað sjer að sjá hagstofunni fyrir húsnæði. Það er nefndinni ókunnugt um; stjórnin hefir ekkert látið uppi um það við hana, og sennilega hefir hagstofustjóra ekki verið kunnugt um það, því að þá er ekki líklegt, að hann hefði beðið nefndina ásjár. Ef svo er, að stjórnin getur útvegað ódýrara húsnæði, sje jeg þó ekki, að þessi brtt. geri mikið til, því að það kemur í sama sjóð.
Þá kem jeg að næstu brtt. nefndarinnar, sem hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) þótti athugaverð. Það er till. nefndarinnar um að fella niður fjárveitingu til sjerstaks eftirlits með bannlögunum. Jeg verð að játa, að það, sem hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) sagði þar að lútandi, voru alveg nýjar upplýsingar. Nefndinni var ekki kunnugt um, að einstakir menn hefðu lagt fram fje til styrktar löggæslunni í Reykjavík, og ekki gat nefndin dregið þá ályktun út úr ummælum stjórnarinnar í aths. við þann lið fjárlagafrv. En jeg held, að þótt nefndin hefði verið búin að fá þessar upplýsingar áður en hún samdi brtt. sínar, hefði hún þó ekki breytt skoðun á þessu atriði. Eins og tekið er fram í nál. um þetta atriði virðast fyrirætlanir stjórnarinnar um meðferð þessarar fjárupphæðar mjög óljósar. En skýringin er þarna, þótt ekki viti jeg, hvort stjórnin ætli að endurborga þessum mönnum útgjöld sín, eða að eins koma í veg fyrir, að þeir leggi meira fram. En það þótti nefndinni varhugavert, sem í aths. stjórnarinnar stóð, að þetta fje átti að nota til »eftirgrenslana«, og eftir orðum hæstv. ráðherra (B. K.) lítur út fyrir, að einmitt eigi að nota þetta til þessa. Jeg held, að mjer sje óhætt að segja, að öll fjárveitinganefndin sje sammála um að vilja ekki styðja að því, að nokkur njósnarmannaklíka komist upp í landinu, launuð af landsfje. Annars ímynda jeg mjer, að ekki verði neinar sjerstakar deilur um þetta, því að, eins og öllum er kunnugt, er á ferðinni í Ed. frv. til laga um aukna löggæslu, og verði það að lögum, fellur þetta sennilega þar undir, og þarf því ekki sjerstaka fjárveitingu. Í dag var það þar til 2. umr. og var víst samþykt til 3. umr. Er því rjett að bíða átekta og sjá, hvernig því reiðir af, því að með því er alt fengið, er þeir óska, sem fengið hafa þennan lið inn í fjárlagafrv.
Eins og tekið er fram í nál. vill nefndin ekki stofna sjerstaka löggæslu vegna einna einstakra laga. En hitt var henni ljóst, að hið löglega lögreglueftirlit er nauðsynlegt og sjálfsagt að styrkja, ef óhjákvæmilegt er, svo sem sjest á því, að hún hefir viljað hækka að nokkru fjárhæð þá í 19. gr., sem ætluð er til óvissra útgjalda.
Þá tók hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) það fram, að það væri ný stefna að taka upp í fjárlög fjárveitingar, er væru fyrirskipaðar í öðrum lögum. Getur verið, að þessi regla sje ekki algild áður, en eins og hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) tók fram er hún í samræmi við þann sið, er hann hefir tekið, og að því leyti er hann sammála nefndinni.
Hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) þótti nefndin ekki stórtæk, er hún vildi fella burt styrk til Kjósarhreppsbúa til að vitja læknis. Það er satt, að þetta er ekki stór upphæð, en ef þetta mál er skoðað frá öllum hliðum, verður það ekki svo lítil upphæð. Það er vitanlegt öllum, sem kunnugir eru skipun læknishjeraða og þekkja landshætti víðs vegar á landinu, að margir hreppar eiga miklu erfiðara með ná til læknis en Kjósarbúar, og þar sem nefndin vildi líta fram í tímann, sá hún, að afleiðingin af samþykt þessa styrks yrði sú, að allir þeir hreppar myndu koma og beiðast hins sama með fullum rjetti.
Það hefir verið mikið um það talað, hvernig fara ætti að því að jafna lækniskostnaðinn sem mest. Það spursmál er óútkljáð enn þá, og verður ekki leyst á þennan hátt, og nefndin vildi ekki hætta sjer út á þann hála ís, að svo komnu máli. Og það er ekki sagt út í loftið, að fleiri hreppar myndu fara fram á samskonar, því að nefndinni er vitanlegt, að hliðstæða brtt. átti að bera fram við frv., ef þessi fjárveiting stæði. Það, sem hæstv. ráðherra (B. K.) færði fram sem helstu ástæðu fyrir þessari fjárveitingu, var, að erfitt væri að sækja lækninn sakir þess, hve þungur hann væri og stór. Jeg held, að það væri hál braut, og ekki alls kostar rjettlátt, að fara að styrkja einhvern hluta læknishjeraðs sjerstaklega eftir því, hvað læknirinn er að pundatölu.
Öðru máli er að gegna um íbúa Flateyjarhrepps, sem nefndin vill styrkja, sakir þess, að þar er yfir sjó að sækja. Það verður ætíð miklu dýrara en landferðir, sem menn venjulega fara með eigin fararskjóta. Sjóferðir hljóta að verða miklu dýrari. Þá verða menn oft að kaupa dýra farkosti til að flytja lækninn, vjelbáta eða þvílíkt.
Þá mintist hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) á spítalana, eins og líka hæstv. forsætisráðherra gerði síðar, og tók fram, að verðlag hefði breyst mikið síðan í febrúar, og þess vegna eðlilegt, að stjórnin hefði ekki farið hærra þá. Það er rjett hjá hæstv. stjórn, að verðlagið er hærra nú en í febrúar, og getur vel verið, að hæstv. stjórn hafi gert sjer vonir um, að það myndi lækka, en mjer finst, að hæstv. stjórn hefði þó ekki átt að fara lægra en læknar spítalanna í sínum áætlunum. Þótt það hefði ef til vill mátt afsaka, að hún fór ekki eins hátt og nefndin nú, átti hún þó ekki að fara lægra en læknarnir, og það því síður sem áætlanir þeirra voru gerðar fyr, ein af þeim 31. okt. 1916, önnur 7. nóv. 1916 og þriðja 9. jan. 1917, ef jeg man rjett. Finst mjer mjög undarlegt, að stjórnin skyldi ekki fara eftir þeim till. að minsta kosti, þótt vitanlega hefði þegar hækkað mikið frá því er þær áætlanir voru gerðar, til þess er stjórnin samdi frv. í febrúar. Meira að segja, síðan seinasta áætlunin hafði verið gerð, 9. janúar, hafði orðið mikil breyting á öllum ástæðum, því að ef jeg man rjett, hófst hafnbann Þjóðverja 1. febr., og það breytti öllu útliti, t. d. um kol, og hafði þá afleiðingu, að öll farmgjöld hækkuðu gífurlega. Get jeg því ekki fyrir mitt leyti skilið, hvers vegna stjórnin fylgdi ekki að minsta kosti till. læknanna.
Nefndin ætlar sjer ekki þá dul, að alt sje rjett hjá sjer, en heldur því fram, að sínar till. sjeu nær sanni en stjórnarinnar, og jeg held, að mjer sje óhætt að segja fyrir allrar nefndarinnar hönd, að hún getur ekki tekið undir það með hæstv. fjármálaráðh. (B. K.), að fjárveitinganefnd gæti eins og fjárhagsnefnd sagt, að áætlun stjórnarinnar væri ef til vill rjettari, því að hún er sannfærð um, að till. nefndarinnar eru í þessari áætlun rjettari en stjórnarinnar.
Jeg vil að eins lauslega drepa á það, mönnum til skilningsauka, að hefði stjórnin farið eftir tillögum læknanna hjer við sjúkrahúsin, þá hefði fjárveitingin til þeirra orðið 65 þús. kr. hærri en gert var ráð fyrir í stjórnarfrumvarpinu.
Þá talaði hæstv. fjármálaráðh. (B. K.) um það, að við viljum breyta styrknum til að byggja sjúkraskýli. Að við viljum gera þetta kemur til af því, að það vakti fyrir okkur að hvetja ekki til þess að byggja neitt á þessu ári. Við álitum það ekki forsvaranlegt, svo dýrt sem alt byggingarefni er nú. En að nefndin hækkaði liðinn var af því, að hún bjóst við, að byggingarefni myndi kosta miklu meira árið 1919 heldur en á venjulegum tímum, og af því að nú er lítið bygt og verður væntanlega líka á næsta ári, þá má búast við, að talsverð hrina muni koma á eftir, og þeir verða fleiri, sem styrksins þurfa.
Enn fremur fann hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) að því, að utanfararstyrkur hjeraðslækna væri hækkaður um 500 kr. Jeg get varla sjeð, að ástæða sje til að lá nefndinni þetta, þar sem hún hefir hjer farið alveg samkv. till. landlæknis. Þess má líka geta, að ferðalög eru nú dýr og dvalir erlendis kostnaðarsamari en áður, en læknar mega ekki við því að missa svo úr ár, að enginn fari utan.
Það hefir verið látið í ljós, að altaf þyrftu helst að minsta kosti 2 læknar að vera erlendis, til þess að leita sjer frekari fræðslu, og er það alveg rjett athugað, en þá þarf fjárveitingin að vera þetta rífleg, og ekki minni.
Þá talaði hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) um styrkinn til Guðm. Thoroddsen og gat þess, að hann mundi hafa fengið embætti utanlands. Mjer er persónulega kunnugt um, að hann hefir ekkert embætti, því að ekki veit jeg til, að það sje kallað embætti, þótt menn fái um tíma kandidatspláss við einhvern spítala. Við þann starfa eru svo lítil laun, að ekki er viðlit að lifa á þeim fyrir einhleypa menn, hvað þá heldur þegar menn hafa konu og börn fram að færa. Ef nefndin hefði haldið, að hann ætlaði sjer að setjast að í útlöndum, þá hefði henni ekki dottið í hug að mæla með því, að hann fengi styrk.
Þá mintist hæstv. fjármálaráðh. (B. K.) næst á póstmálin, og hafði það þar fyrir röksemdir, máli sínu til stuðnings, að stjórnin hefði verið hrædd við þingið, vegna undanfarandi reynslu. Jeg skal játa það, að þetta hefir við nokkur rök að styðjast, en þó getur það tæplega talist næg afsökun, því að þótt undanfarandi þing hafi klipið úr fjárveitingum til póstmálanna, þá átti stjórnin ekki að setja það fyrir sig, svo framarlega sem till. hennar var sanngjörn. Hæstv. fjármálaráðh. (B. K.) sagði, að það hefði orðið að samkomulagi milli hans og póstmeistara að veita ekki meira fje til þessa en gert er ráð fyrir í frumvarpi stjórnarinnar, og láði hann nefndinni, að hún hefði ekki talað við póstmeistara um þetta, en það var einmitt það, sem nefndin gerði. Hún kallaði póstmeistara á sinn fund, og gat hann ekki um, að neitt samkomulag hefði orðið milli sín og stjórnarinnar.
Þá átti það að vera enn eitt dæmi upp á vantandi samvinnu milli stjórnarinnar og nefndarinnar, að nefndin vill hækka skrifstofufje vegamálastjórans úr 1500 kr. upp í 2000. Nefndin átti tal við hann um þetta, og færði hann þau rök fyrir hækkuninni, að það borgaði sig að taka sjerstakan mann á skrifstofuna, til þess að tefja ekki dýrari mennina, verkfræðingana. En slíkan mann sagði hann, að ekki væri hægt að fá fyrir minna fje en 900—1200 kr., og sjá þá allir, að hjer er eiginlega ekki um neina hækkun að ræða.
Um vegamálin og athugasemdir hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) út af þeim er það að segja, að það mun vera satt, að stjórnin hafi þar víðast farið eftir tillögum verkfræðingsins. En það sama get jeg einnig sagt um nefndina. Ástæðan til þess, að niðurstaða stjórnarinnar og nefndarinnar í þessum atriðum er svo ólík, mun sumpart vera sú, að nú eru breyttir tímar frá því, sem var þegar frv. var samið, og í öðru lagi er nú annar verkfræðingur en þá, því að upphaflegu tillögurnar munu hafa verið gerðar af fyrverandi landsverkfræðingi.
Það, að fjárveitingarnar til Langadalsvegarins og annara vega eru hækkaðar um 2000 kr., er af því, að úr því að verkið er á annað borð svo mikið, að ekki er að vænta, að því verði lokið með vorinu, þá er heppilegast, að fjeð sje svo mikið, að það endist til vinnu
alt sumarið, því að ekki borgar sig að flytja bæði verkfæri og menn milli hjeraða á miðju sumri.
Þá vil jeg minnast enn á viðhald landssjóðsveganna. Það er nú mjög af skornum skamti. Ef fjárveitingin vri ekki hækkuð, þá mundi verða unnið enn minna en áður, vegna hækkunar á kaupi. Jeg vona því, að deildin verði ekki sammála hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) um, að ekki beri að halda í horfinu um viðhaldið, því að það væri slæmur búskapur að láta svo dýr mannvirki eyðileggjast fyrir viðhaldsleysi.
Hæstv. fjármálaráðh. (B. K.) kvaðst altaf hafa verið á móti fjárveitingu til Jökulsárbrúarinnar. Þetta hlýtur að vera misminni, því að við 2. umr. fjárlaganna 1915 mun hann hafa látið vera að greiða atkvæði, en taldist með meiri hlutanum, sem samþykti brúna. Jeg veit ekki, hvaðan hæstv. fjármálaráðh. (B. K.) kemur það vantraust á verkfræðingunum, sem kom í ljós í því áliti hans, að nýir menn þurfi til að koma og rannsaka málið, áður en ákvarðað verður, hvort brúin skuli bygð eða ekki, og jeg hygg, að þetta vantraust hans sje alveg ástæðulaust. Jeg skal líka taka það fram, að þessi fjárveiting er einmitt sett inn í samráði við vegamálastjórann.
Þá gat hæstv. fjármálaráðh. (B. K.) þess, að akfærum sýsluvegum hefði aldrei verið hossað meir en nú. Áður hafi aldrei verið veitt meira en 18,000 kr. til þeirra, en nú væri gert ráð fyrir 25,000 kr. Um þetta atriði gilda sömu ástæður sem um viðhald landssjóðsveganna, að nefndin vildi varast að fá afturkipp í þær framkvæmdir. Á síðasta þingi var fjárveitingin lækkuð frá því, sem stjórnin hafði lagt til, og því áleit nefndin nú enn meiri ástæður til að veita því ríflegri upphæð, Nefndin hefir, þrátt fyrir þetta, þó ekki hækkað alt vegafje jafnt, af því að hún sá sjer það ekki fært af sparnaðarástæðum og fleiru, sem jeg hirði ekki hjer að greina.
Hæstv. forsætisráðherra er þegar svarað með því, sem jeg hefi sagt um spítalana, og hirði jeg ekki um að taka það upp aftur.
Þá kem jeg að hæstv. atvinnumálaráðherra. Hann endurtók flest hið sama, sem hinir ráðherrarnir höfðu áður sagt, eins og hann er vanur, og er því þegar svarað að miklu leyti.
Hann fann það helst nefndinni til foráttu, að hún hefði ekki tekið sama tillit til till. símastjórans eins og póstmeistarans. Það hefir nefndin að vísu ekki enn gert, en skeð getur, að hún jafni þar betur, enda má líka geta þess, að póstmeistarinn er talinn einna mestur sparsemdarmaður allra þeirra manna, sem senda tillögur sínar til stjórnarinnar, að hinum ólöstuðum.
Annars er jeg þakklátur hæstv. atvinnumálaráðherra fyrir það, að hann fylgir nefndinni í till. hennar um vegagerðir, og hlýtur hann þá að vera þar ósammála meiri hluta stjórnarinnar, og má það nýtt heita og undarlegt, að það skuli koma fyrir, að stjórnina greini á.
Hann fann það að orðinu »vegamálastjóri«, að verkfræðingurinn hefði meiri ástæðu til að færast undan að skifta sjer af öðrum málum en þeim, sem beint heyra undir stjórn vegamála, ef hann hjeti vegamálastjóri, en ekki landsverkfræðingur.
Jeg hygg, að hann þurfi ekki að óttast þetta svo mjög, því að reynslan sýnir annað. Vitamálastjórinn hefir t, d. ekki færst undan því að hafa á hendi fleira en það, sem beint heyrir undir umsjón vitanna, þótt hann hafi áður heitið umsjónarmaður vitanna. Þetta er því hjegilja ein hjá hæstv. atvinnumálaráðh., enda er það vitanlega ekki tilætlun nefndarinnar, að svo fari.
Jeg get þá ekki verið að elta lengur ólar við stjórnina, en skal snúa mjer að öðrum. Er það þá fyrst og fremst samgöngumálanefndin og till. hennar, sem jeg vil minnast á. Jeg get tekið allar tillögur hennar í einu lagi, og er nefndin þeim samþykk yfirleitt, nema að því leyti, sem þessar fáu brtt. okkar sýna. Fjárveitingarnefndin áleit það vera rjettara að binda fjárveitingarnar til Breiðafjarðarbátsins við nafn fjelagsins, sem ræki ferðirnar.
Það er tilætlun fjárveitinganefndar, að Breiðafjarðarbáturinn komi við á þeim stöðum, sem ætlaðir voru Rauðasandsbáti, svo að sæmilega ætti að vera sjeð fyrir því svæði. Ef svo yrði, að menn notuðu þessar ferðir Breiðafjarðarbátsins lítið, þá er í sjálfsvald sett fjelaginu að fá minni báta til þeirra, ef því þætti það borga sig. Nokkuð af upphæð þessari til Breiðafjarðarbáts er ætlað, hvort sem er, til báts, sem gangi með Barðaströndinni. Það er annars sama um þennan Rauðasandsbát að segja og aðra smábáta, sem ætlaður er styrkur, að nefndin er því eindregið mótfallin, að þeir fái styrk. Það er hætt við, að þeir yrðu margir smábátarnir í kringum land alt, sem ættu jafnan rjett til styrks og þessir. Mig furðar á, að samgöngumálanefndin skuli ekki hafa getað orðið fjárveitinganefnd sammála um þetta efni. Einkum vil jeg hvetja háttv. deild til að fella styrkinn til bátaferða á Hvítá. Nefndinni er ekki kunnugt um, að þessar ferðir sjeu til svo sjerlegs gagns fyrir hjeraðið, enda bendir álit samgöngumálan. til þess. (P. O.: Jú, þær eru til stórgagns). Þó að brú sje ekki enn komin á Hvítá, er satt að segja svo komið um samgöngur á landi í Borgarfirðinum, að fá hjeruð landsins munu betur komin. Á því er enginn vafi, að ef smábátastyrkirnir haldast, þá verður það til þess, að kröfurnar koma hvaðanæfa af landinu um styrk til vöruflutninga á sjó. Og því skyldu menn þá ekki líka taka upp á því að sækja um styrk til vöruflutninga inn í afdali. Enda væri sú krafa bygð á sömu rökum og smábátastyrkurinn.
Þá var það hv. 1. þm. Eyf. (St. St.), sem jeg ætlaði að snúa máli mínu til. Hann ber fram brtt. um að veita 3000 kr. á ári til Öxnadalsvegar. Nefndin gat ekki fallist á þessa tillögu hans. En ef eitthvað verður lagt til atvinnubóta fram yfir það, sem í fjárlögum stendur, þá er stjórninni auðvitað heimilt að veita eitthvað til þessa vegar, svo framarlega sem vegamálastjórinn álítur, að hann hafi forgangsrjett fyrir öðrum. Jeg skil ekki annað en að hv. flutnm. felli sig vel við þessa úrlausn. Hann var einmitt að tala um, að margir væru þurfandi fyrir atvinnu á þessu svæði. Ef hann getur sýnt stjórninni fram á, að svo sje, þá fær hann auðvitað styrk til vegarins. En það er varla við öðru hætt en að honum takist það, ef hann talar þar jafnfagurlega máli sínu og hjer í deildinni. Honum fanst Langadalsveginum gert hátt undir höfði, en það er gert af sparnaðarástæðum, eftir till. vegamálastjórans. Því að ef að honum er unnið í einu fyrir þessa fjárupphæð, þá sparast að flytja menn og verkfæri í fjarlæg hjeruð á miðju sumri.
Þá er hv. 1. þm. Árn. (S. S.) með brtt. um að styrkja hreppsveg í Gaulverjabæjarhreppi. Nefndin gat ekki orðið þessari till. samþykk, einmitt af því, að hjer er um hreppsveg að ræða. Það breytir engu um, þótt hann liggi út af sýsluvegi. Svo er um marga hreppavegi. Engin áætlun fylgir till., en þarna eru vegir dýrir; þess vegna hafði nefndin enn meiri ástæðu til að vera á móti tillögunni.
Í því skjali, sem fyrir nefndinni lá, var þess getið, að hreppurinn þyrfti að fá þennan veg, til að geta haft not af Miklavatnsmýraráveitunni. Það er harla undarlegt, þegar búið er að fleygja stórfje í einhvern hrepp til umbóta, að hann skuli þá koma og segja sem svo: Þetta áveitufyrirtæki get jeg ekki notað, nema þið »skaffið« mjer líka góðan heybandsveg og heimreið. Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) hjelt því fram, að þetta mál væri hliðstætt Fljótshlíðarveginum. En svo er ekki. Jeg hygg, að Fljótshlíðarvegurinn sje nú sýsluvegur, og var búið að leggja helming fjárins úr sýslusjóði, þegar hreppurinn var styrktur til þess að leggja fram hinn helminginn. Þá taldi háttv. þm. (S. S.) Svarfaðardalsveginn líka hliðstæðan. En Svarfdælir lögðu á sig þegnskylduvinnu til vegagerðarinnar. Ef Gaulverjabæjarhreppsmenn gerðu slíkt hið sama, þá væri hugsunlegt, að nefndin tæki betur í málaleitanir þeirra.
Háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) vildi og fá skýringu launa símamanna, en nefndinni er ekki skylt .að gefa neina skýringu um það — hún hefir þar engu breytt — heldur stjórninni, og getur þingmaðurinn leitað þangað eftir svarinu, ef honum finst þetta mál ekki fyllilega ljóst,
Háttv. þm. Borgf. (P. O.) talaði talsvert langt mál um Hvítárbrúna og vegarkafla að henni. Það hefði hann getað sparað sjer, því að engin hefir brtt. frá honum komið um það efni. Þá var það Hvítárbáturinn. Því hefi jeg þegar svarað. Hann kvað það undarlegt að kippa styrk til þessa báts burt, en hækka styrk á öðrum. Jeg skal ekki gerast framsögumaður samgöngumálanefndar, en vil þó gefa honum þá skýringu, að það kemur til af því, að þeim bátum, sem styrkur er ætlaður til, er ætlað að sinna strandferðum, eins og nú á stendur.
Jeg er þakklátur hv. þm. Mýra. (P. Þ.) fyrir þakklæti hans. Þar mun hann eðlilega ekki hafa skilið orð mín rjett, er hann sagði, að fjárveitinganefnd hafi tekið upp þá reglu að vera á móti öllum brtt., sem frá einstökum þingmönnum koma. Sumir hafa jafnvel kvartað yfir hinu gagnstæða, að altof auðvelt hafi reynst að fá nefndina til að fylgja sumum brtt. Jeg skal játa, að það er í mjög mikið óefni komið, ef Mýrarnar eru ófærar bæði á sjó og landi, eins og þm. (P. Þ.) sagði. En bátar kæmu þá ekki að haldi heldur. Þar þyrfti helst að veita til einhvers farartækis í loftinu. En jeg get þó varla trúað, að Mýrarnar sjeu svo ófærar sem háttv. þm. (P. Þ.) sagði. Nú liggur vegur þvert yfir þær, og eru það mörg hjeruð, sem ekki hafa átt því láni að fagna að fá slíkan veg. Þm. gat þess, að 1909 hafi farist fyrir ferð til Akra, vegna veðurs. Slíkt getur altaf komið fyrir, og kann fjárveitinganefnd ekkert ráð við því. Um hitt var fjárveitinganefnd ekki kunnugt, að Faxaflóabáturinn sje búinn að leggja niður ferðir til Straumfjarðar og Akra. Samgöngumálanefndin átti að sjá til, að það sæti í sama horfi, en hitt má telja ófært að fara að kosta sjerstakan bát fyrir sárfáa bæi. Því að ekki getur verið um marga bæi að ræða, sem hafi gagn af bátnum, ef satt er, sem háttv. þm. (P. Þ.) sagði, að Mýrarnar væru alófærar á landi.
Háttv. þm. Mýra. (P. Þ.) var svo gamansamur að spyrja, hvað »vetrarvegur« væri, og ætti hann þó að vita það, því að þeir munu vera bestir á Mýrunum. Um Almannaskarð liggur einstigi, en á vetrum legst skafl og harðfenni í það, svo að það verður hættulegt yfirferðar. Þar hafa orðið slys og oft legið við slysi. Nefndin ætlast nú ekki til að koma í veg fyrir, að skafl leggist í einstigið, en bættur vetrarvegur yrði þar, ef t. d. staurar væru settir niður og búið til eins konar rið, sem menn gætu haldið sjer í. Þetta heldur landsverkfræðingur að gera megi með litlum tilkostnaði, en mikið gagn muni af hljótast.
Háttv. 2. þm. Eyf. (E. Árna.) var sá eini, sem ekki byrjaði á þakklætisorðum. Jeg verð líka að viðurkenna, að hann hafði lítið að þakka nefndinni viðvíkjandi sínu hjeraði, en því meira stjórninni. Nefndin álítur athugasemd þá, er hann vill koma að, óþarfa, vegna athugasemdarinnar, sem fylgir öllum kaflanum. Nefndin vill ekki taka fram fyrir hendurnar á landsverkfræðingnum um það, hvernig eigi að ráðstafa brúafjenu, ef það skyldi ekki ganga til brúa. En venjan er það, að það sje brúkað í sama hjeraði og brúin átti að standa. Sennilegt er, að verkfræðingurinn bregði ekki þeim vana, en nefndin vill ekki skipa honum neitt fyrir um það. Þetta þarf því ekki að vera háttv. flutnm. (E. Árna.) kappsmál, og væri best, að hann tæki brtt. sína aftur.
Nú held jeg, að jeg sje búinn að nefna það helsta, sem sagt hefir verið í garð nefndarinnar, og vonast til, að það falli vel á með nefndinni og háttv. deildarmönnum, er til atkvæða kemur.