20.07.1917
Neðri deild: 15. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 763 í B-deild Alþingistíðinda. (350)
13. mál, einkasöluheimild landsstjórnarinnar á steinolíu
Benedikt Sveinsson:
Háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) var undarlega andvígur þessari 1. brtt., þar sem hann þó í öðru orðinu hjelt því fram, að á henni væri nær enginn munur og frv.-greininni. Mjer skildist, að hann vildi skilja frv. svo, að meiningin með því væri sú, að þessi lög ættu að koma strax til framkvæmda; það mætti ekki líða nema sem allra stystur tími frá því, að lögin væru samþykt, og þangað til að stjórnin tæki verslunina í sínar hendur. En þetta er einmitt ekki tekið fram í frv., og af því að óttast má, að stjórnin dragi það jafnvel árum saman að nota heimildina, eins og henni er komið fyrir í frv., þá hefi jeg einmitt borið fram breytingartillöguna, er fær stjórninni einkarjettinn í hendur þegar í stað. Það ætti því einmitt frá sjónarmiði háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) ekki að skaða, þótt þessi brtt. næði fram að ganga, þar sem hún tekur einmitt það fram, sem hann viðurkennir að sje svo nauðsynlegt, en er ekki fólgið í frv , þótt hann virðist ætla, að svo sje.
Háttv. þm. (M. Ó.) var að tala um, að brtt. gæti orðið til skaða, með því að þeir, sem kann ske hefðu pantað olíu, gætu afstýrt því, að farmurinn yrði sendur, er þeir fengju vitneskju um einkaheimild landsstjórnarinnar. Þetta kalla jeg hina mestu fjarstæðu, því að það er sannarlega hægurinn hjá að semja við stjórnina um innflutning olíunnar, því að stjórninni er það engu síður hugleikið en kaupmanninum, að olíubirgðir komi sem fyrst til landsins. Hvað ætti svo sem að geta valdið því, að olíuförmum, sem væru á leið til landsins, yrði snúið aftur vegna þessarar lagasetningar? Slíkt nær engri átt. Þetta er ekkert annað en grýla, sem slegið er fram til að hindra brtt., annaðhvort af skammsýni eða skorti á góðgirni.
Háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) hjelt því fram, að tilgangurinn með allri einkasölu eða einokun væri sá, að afla landssjóði tekna. Tilætlunin væri sú, að varan yrði kaupendum ekki dýrari en ella, en af því, að landssjóður keypti í stórkaupum, þá gæti hann sætt betri kaupum en aðrir, og ágóðann ætti hann svo að hirða sjálfur. En það eru miklar veilur á þessum staðhæfingum. Ef landsstjórn tekur einkasölu á munaðarvöru, þá er aðaltilgangurinn sá, að afla landssjóði tekna. En þá er tilætlunin engan veginn sú, að varan verði kaupendum jafnódýr og ella. Einkasölu á tóbaki mundi landið beint taka til þess eins að græða á henni fje handa landssjóði, og ekki horfa í, þótt varan hækkaði í verði. En þegar um nauðsynjavöru er að ræða, þá er einkasalan gerð í alt öðrum tilgangi en þeim að afla landssjóði tekna. Tilgangurinn er þá, og á að vera, að afla landslýðnum vörunnar fyrir sem allra lægst verð. Jeg hygg t. d., að háttv. 2. þm. Rang. (E. J.) hafi ekki komið með frv. sitt um einkasölu á steinlími til þess að afla landssjóði tekna, heldur til þess að afla landsmönnum góðrar vöru með góðu verði. Það er þannig tvens konar stefna, sem ríkir, að því er einkaverslun snertir, alt eftir því, hver varan er, sem um er að ræða. Það, sem gerði einkasölu eða einokun skaðlegasta og illræmdasta fyr á öldum, var einmitt sú misbeiting stjórnarinnar, að hún notaði einkasöluna til þess að ná gróða af nauðsynjavöru sjer til handa, — og það er þess konar misbeiting, sem jeg er að reyna að girða fyrir með brtt.
Og hvað sem því nú líður, að þeir, sem stóra útgerð hafi, græði meira en þeir, sem litla útgerð hafi, eins og hv. frsm. (M. G.) kvað að orði, þá er þar til að segja, að fyrir því er engin regla. Það er alls engin vissa fyrir því, að gróðinn sje í hlutfalli við olíueyðsluna, og því er þessi tekjustofn ranglátur. En hins vegar skal jeg ekki lá háttv. frsm. nefndarinnar
(M. G.), þótt hann haldi fast við það, sem nefndin hefir áður ákveðið, einkum þar sem nefndin er kunn að því að einblína á það eitt, er orðið getur einhver tekjugrein fyrir landssjóðinn.