14.08.1917
Neðri deild: 33. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1114 í C-deild Alþingistíðinda. (3502)

130. mál, útflutningsgjald af síld

Flm. (Sigurður Sigurðsson):

Þetta frv. er flutt fram með það fyrir augum að gera tilraun til þess að bæta fjárhag landsins. Í greinargerðinni aftan við frv. eru færðar ástæður fyrir frv. og sýnt fram á, að þörf er á auknum tekjum. Í frv. er gert ráð fyrir því, að lögin komi ekki til framkvæmda fyr en um eða eftir næstu áramót; þetta er bygt á ástandinu, eins og það er nú, miðað við hið háa verð, sem á öllu er nú, sem að síldarútvegi lýtur. Líkt frv. þessu lá fyrir þinginu í vetur og var þá samþykt hjer í Nd. Vona jeg því, að þessu frv. verði vísað til 2. umr. og nefndar.

Jeg verð að telja síld allálitlegan tekjustofn. Það má gera ráð fyrir því, enda hafa heyrst raddir um það, að eftir stríðið muni síldarútvegur aukast hjer að stórum mun, einkum með því, að haft hefir verið á orði, jafnvel eftir að stríðið hófst, að útlendingar, einkum Norðmenn og Svíar, mundu fara að leggja sig enn meir eftir síldveiði hjer við land en áður. Þess vegna má hjer gera ráð fyrir álitleguni tekjustofni. Hins vegar leikur enginn vafi á því, að landssjóður þarfnast mikilla tekna.

Jeg hefi ekki sjeð mjer fært í frv. að gera greinarmun á innlendum og útlendum mönnum. Ef til vill væri ástæða til þess með því t. d. að hækka hundraðsgjaldið, sem ráðgert er í frv. 5% og renni í Fiskveiðasjóð.

Með þessu frv. eru numin úr gildin lög 31. júlí 1907 og, eftir mínum skilningi, 4. tölul. 1. gr. laga 13. aprí l 1894, þótt ekki sje það beint tekið fram í frv.

Jeg skal svo ekki fara fleirum orðum um frv. í þetta sinn. Jeg vænti, að því verði vel tekið, ekki síður en í vetur. Það væri alleinkennilegt, ef það væri felt strax, og get jeg ekki látið mjer detta það í hug, þegar litið er á allar ástæður. Að lokinni þessari umr. leyfi jeg mjer að leggja það til, að frv. verði vísað til fjárhagsnefndar.