09.08.1917
Neðri deild: 29. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1122 í C-deild Alþingistíðinda. (3512)

133. mál, misærisskattur af tekjum

Atvinnumálaráðherra (S.J.):

Það er enginn vafi á því, að landinu er þörf á auknum tekjum, og að það má eiginlega engan missa af tekjustofnum þeim, sem nú eru. Og sennilega veitti ekki af að fara báðar leiðirnar, að halda verðhækkunartolli, og þá, er háttv. þm. (B.J.) vill fara.

Það er auðvelt að breyta hundraðstölunum, ef aðrar þykja hæfilegri, en engum mun blandast hugur um, að það sje rjett stefna að afla þar mestra tekna, sem af mestu er að taka. Jeg tel því rjett, að nefnd athugi báðar þær leiðir, sem hjer ræðir um.