12.09.1917
Neðri deild: 58. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1133 í C-deild Alþingistíðinda. (3530)

134. mál, veðurathugunarstöð í Reykjavík

Frsm. (Bjarni Jónsson):

Því miður var jeg kallaður frá við síðustu umr. þessa frv., svo að jeg gat ekki gert mönnum grein fyrir því þá. En mjer er sagt, að menn hafi tekið því vinsamlega, og mun jeg því eigi þurfa að mæla með því. Þó vil jeg í nokkrum atriðum taka fram nokkrar nánari skýringar á nál.

Jeg skal fyrst geta þess, að í nál. er lestrarvilla, einingarmælir, í staðinn fyrir eimingarmælir (þ. e. uppgufunarmælir).

Annars skal jeg taka það fram, að jeg hefi gert mjer far um það í nál. að rekja málið þannig, að allir geti gert sjer grein fyrir því.

Þess skal jeg geta, að nefndin ætlaðist ekki til þess, að þessi veðurathugunarstöð í Reykjavík yrði vísindastofnun, er ynni öll þau störf, sem vant er að vinna á slíkum stofnunum, heldur taki hún við skeytum frá 8–10 vel völdum stöðvum á landinu, er hún síðan ynni úr, eftir viðurkendum reglum, og reiknaði út, og sendi síðan árangurinn til allra veðurvarastöðva á landinu.

Þessar veðurvarastöðvar mundu vafalaust koma að miklu gagni, ekki botnvörpungum eða stærri skipum, heldur vjelbátum og róðrarbátum. Þarf ekki annað en að minna á það, sem í nál. stendur um veðurspárnar. 1885 voru rjettir spádómar 79%, 1890 87% og 1894 92%, og sjálfsagt hefir rjettum veðurspám fjölgað síðan, en ekki eru á söfnum hjer yngri gögn um þetta.

Til nánari skilningsauka skal jeg taka það fram, að á veðurvarastöðvunum eru stengur með ákveðnum merkjum, er sýna veðurbreytingar, keilur og bumbur. Þegar oddur á keilu veit upp, táknar það norðanátt, en sunnanátt ef oddur keilunnar veit niður. En bumba eða trumba táknar von vinda úr ýmsum áttum. Á nóttu eru keilur sýndar úr ljósberum o. s. frv. Er öllum almenningi auðvelt að nema þetta, og er um það gerð skrá, er sýnir, hvað hvert merki tákni.

Má mönnum hjer af skiljast, að með slíkum veðurvarastöðvum má sýna, hve nær óveður eru í vændum, og þannig bjarga lífi manna.

Um kostnaðinn er það að segja, að jeg veit ekki gerla, hvað verkfærin kosta, en ekki kosta þau stórfje; það veit jeg. Það er ekki heldur nauðsynlegt að hafa öll verkfæri, sem nefnd eru í nál. Sumar slíkar stöðvar sleppa rakamælum, eimingar- (þ. e. uppgufunar) mælum og sólskinsmælum. Og að vísu mun þessi kostnaður ekki fara fram úr 15.000 kr.

Jeg hygg nú, að þessi deild muni ekki hugsa sig lengi um að setja sem fyrst upp þessar veðurvarastöðvar. Erum vjer sæfaraþjóð og eigum mikinn fjölda mannslífa undir veðrum komin. Er hjer og ekki eingöngu að ræða um hag manna í sjávarhjeruðum, því að búendur um land alt senda sonu sína til útróðra í veiðistöður um vertíðir. Er því öllum þingmönnum jafnskylt að veita fullan stuðning þessu máli.

Þess má líka geta hjer, að veðurathuganastöðin í Kaupmannahöfn hefir hjer nokkrar athuganastöðvar, og mundi hún halda því áfram, og íslenska stöðin þyrfti því ekki að borga meira en helming, svo að hún gæti í raun og veru orðið kostnaðarminni og ódýrari en jeg hjer hefi greint. — Jeg skal svo ekki þreyta menn meir á ræðum um málið, enda hefi jeg gert grein fyrir því í nefndarálitinu. Og jeg vona því, að allir sjái sjer fært að greiða þessu frv. atkvæði sitt.