13.09.1917
Neðri deild: 59. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1147 í C-deild Alþingistíðinda. (3546)
188. mál, kjötþurkun
Einar Arnórsson:
Jeg get tekið undir það, sem hv. þm. N.-Þ. (B.Sv.) sagði um daginn, að jeg mun síst álasa mönnum fyrir það að vekja upp ýmsar nýungar, en af því leiðir það ekki, að jeg sje með því að veita einkaleyfi til allra nýunga, án þess að jeg viti nokkuð, hvað muni verða úr framkvæmdum. Enda er það alt annað að hlynnna að þeim mönnum, sem fást við að finna upp nýungar, eða veita þeim einkaleyfi til að hagnýta þær.
Mjer er nú kunnugt um það, að í öðrum löndum eru ýmsar kröfur gerðar til þeirra manna, sem sækja um að fá slík leyfi. Þessar kröfur eru, eins og allir vita, gerðar samkvæmt sjerstakri löggjöf, svokallaðri „patent“-löggjöf. Þessar kröfur eru meðal annars þær, að beiðninni verður að fylgja nákvæm lýsing á öllum þeim vjelum, sem vinna á með, og uppdráttur af hverju fyrir sig. Engum þessum skilyrðum er hjer fullnægt. En alstaðar er undan tekin meðferð á matvælum og læknislyfjum. Nú er hjer ekki um eina vissa aðferð að ræða, heldur alment öll þurkun á kjöti með vjelum. Þetta hlýtur því að heimfærast undir meðferð á matvælum. Við verðum því undantekning frá öðrum þjóðum, ef við samþykkjum þetta frv.
Við höfum tvisvar áður veitt leyfi, sem fór í svipaða átt og þetta. Það var á þinginu 1913, að stjórninni var heimilað að veita Páli Torfasyni einkaleyfi til að vinna salt úr sjó, og það leyfi var síðan veitt af stjórninni. Sömuleiðis árið 1915 var Þórarni Þórarinssyni og Magnúsi Gíslasyni veitt leyfi til að hagnýta járnsand við strendur Íslands. Jeg veit ekki, hvort þetta leyfi er enn veitt af stjórninni, en í minni ráðherratíð var það ekki veitt. Þótt leyfið til að vinna saltið væri veitt í góðum tilgangi, þá hefir ekki orðið neitt úr framkvæmdum. Þetta er óheppilegt, því að það mætir manni ekki ósjaldan í útlöndum, að menn eru að furða sig á því, að Alþingi skuli vera að fást við slíkt. Þótt þessi einkaleyfisbeiðni sje aðgengilegri en hinar, þá hefði þó háttv. landbúnaðarnefnd átt að læra af undanfarandi reynslu að brenna sig ekki oftar á sama soðinu, en setja meiri tryggingar inn í frv. en þar er gert.
Annars furðar mig á því, að leyfisbeiðandi skuli geta látið sjer nægja 5 ára leyfistíma. Maður gæti freistast til að búast við því, að tilgangurinn væri að eins sá að framselja leyfið, eða braska með það. Sömuleiðis er það mjög athugavert við frv., að verði það að lögum, þá komast ekki aðrar kjötþurkunaraðferðir að, nema með góðu leyfi leyfisbeiðanda, en það verð jeg að telja mjög óheppilegt.
Ef fyrirtækið væri komið í gang, þá væri sanngjarnt að styðja það, en nú vitum við ekki neitt um fyrirtækið annað en það, að það er líklegt til að hefta frjálsar framkvæmdir í meðferð kjöts. — Mjer þætti gott, ef leyfisbeiðandi vildi láta sjer nægja, að málið gengi ekki fram á þessu þingi, en legði svo fyrir þingið að sumri frekari gögn, svo að hægra væri að átta sig á málinu. Það er ekki heldur rjett að varpa allri sinni áhyggju upp á háttv. Ed. og búast við því, að hún muni laga það.
Hvernig stendur annars á því, að frv. kemur svona seint fram? Jeg veit þó ekki betur en að nefndin hafi legið á því nokkuð lengi, og þegar það svo loksins kemur fram, þá kemur enginn ungi úr egginu. Skurnin brotnar utan af stropanum. (St. St.: Nefndin var að safna meðmælum með frv.). Jeg sje ekki, að þau meðmæli, sem nefndin hefir fengið með þessu leyfi, sjeu nokkurs virði.
Jeg verð að segja, að nefndin hefir unnið málinu ógagn með því að liggja á því allan þennan tíma, og hreinasti óþarfi var henni að bíða eftir þessum gersamlega einskisverðu meðmælum. Nefndin hefði getað lært talsvert af lögum þeim tveimur, sem heimiluðu stjórninni að veita áðurnefnd einkaleyfi 1913 og 1915. T.d. skal jeg taka það, að bannað er framsal einkaleyfisins í báðum þessum lögum, til annara en þeirra, er heimilisfang hafa hjer á landi. Þetta hefir nefndin ekki athugað, fremur en annað, sem hún hefði þó vissulega átt að kynna sjer í sambandi við þetta mál
Svo er eitt, sem að vísu kemur ekki þinginu við. Þó vil jeg nefna það. Kjötframleiðsla þessa lands er ekki nema örlítið brot af allri kjötframleiðslu heimsins. Þarf jeg ekki að nefna nema Argentinu og Ástralíu. Svona lagað einkaleyfi kæmi því ekki að neinu haldi. Því að ef einhverjar þurkunaraðferðir fyndust, þá myndi samkepnin frá þessum löndum verða svo mikil, að það kæmi að engu gagni, þótt ekki væri um innanlandssamkepni að ræða. Svona lagað einkaleyfi er ekki heldur venja til að veita í nokkru landi. Það væri meiningarlaust að veita einkaleyfi á kjötpurkun með vjelum yfirleitt. Hitt væri eðlilegra, að veita einkaleyfi á einhverri sjerstakri aðferð til að þurka kjöt. En það heyrir ekki undir Alþingi.
Það væri betra fyrir þetta mál sjálft, að mönnum væri gefinn tími til að átta sig á því. Því vil jeg leyfa mjer að afhenda forseta svo hljóðandi rökstudda dagskrá.
Með því að nauðsynlegar upplýsingar vantar um mál þetta, og með því að svo virðist, sem einkaleyfi það, sem hjer greinir, fari í bága við almenna löggjöfum veitingu einkaleyfa, þykir deildinni ekki rjett að afgreiða þetta mál frá sjer nú, og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.