31.07.1917
Neðri deild: 21. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1199 í C-deild Alþingistíðinda. (3584)

97. mál, hámarksverð á smjöri

Einar Arnórsson:

Jeg skal leyfa mjer að gera örstuttar athugasemdir við ræður tveggja hinna síðustu ræðumanna, hæstv. forsætisráðherra og háttv. þm. V.-Ísf. (M.Ó.).

Hæstv. forsætisráðherra sagði, að ekki dygði í þessu efni að afgreiða áskorun til stjórnarinnar, vegna þess, að deildin gæti ekki gefið stjórnarráðinu sannfæring, sem það hefði ekki, en það væri undir stjórnarráðinu komið, hvort það teldi hámarksverð rjettmætt eða ekki.

Það má vera, að frumvarpsleiðin hefði verið enn ólastanlegri í þessu máli, en þó þarf ekki svo að vera; menn geta hugsað sjer það hámarksverð oflágt, sem er, en viljað þó hafa verðlag.

Jeg veit ekki, hvort stjórnin er sömu skoðunar sem vjer flutningsmenn, en viss atriði benda þó til þess, að stjórninni þyki hámarksverðið á smjöri oflágt. Stjórnin hefir gert samning við rjómabúsambandið austanfjalls um að framleiða smjör, er hún kaupi fyrir kr. 3,60 hvert kg. Ef stjórnin hefði talið rjómabúunum kleift að framleiða smjörið ódýrara, þá mundi hún ekki hafa gert þennan samning.

Í annan stað sje jeg í fjáraukalagafrv. stjórnarinnar, að hún gerir ráð fyrir 10 þús. kr. styrk til rjómabúa þetta ár. (B. J. í Stjórnin leggur til að fella þá fjárveitingu niður aftur). Það vissi jeg ekki fyr en nú. En af viðtali við merka menn Veit jeg það, að þeir kæra sig ekkert um þennan styrk, ef þeim væri gert nokkurn veginn frjálst að selja smjörið. Og þessa ívilnun til rjómabúanna, sem jeg heyri nú að stjórnin sje horfin frá, mundi henni aldrei hafa komið til hugar að gera, ef hún hefði ekki talið hana nauðsynlega til þess, að starf þeirra gæfi borið sig.

Hæstv. forsætisráðherra sagði, að hægt mundi að fá smjör frá útlöndum á kr. 1,72 pd. hingað komin. Jeg skal ekki bera brigður á þetta, því að hann veit það betur en jeg. En vegna flutningavandræðanna held jeg, að þetta geti ekki komið að verulegu haldi, og jeg veit ekki, hvort Danir kunna ekki að selja þessum útflutningi einhver takmörk. En hitt veit jeg, að smjörlíki það, sem ekki hefir verið lagt verðlag á, en selt hefir verið fyrir kr. 1,30 til 1,50, er sumt trauðla mannamatur, og að íslenskt smjör er betra kaup, þótt gefa verði talsvert meira fyrir það, heldur en þetta slæma smjörlíki.

Ástæðan fyrir hámarksverði hlýtur að vera sú, að ein stjett manna ber byrðar annarar eða hjálpar henni til þess að komast betur af, og þessi ástæða getur verið alveg rjett. En þetta verðlag getur ekki komið að liði hjer í Reykjavík, sem því er þó nánast ætlað. Jeg var hjer staddur á borgarafundi nýlega, fámennum að vísu. Þetta mál kom þar fram, og var kvartað yfir því, að almenningur fengi ekki færi á því að afla þessa smjörs. Það var sagt, að það væri pantað fyrirfram og selt í svo stórum pörtum, að almenningur fengi ekki til náð. Jeg veit nú ekki, hvort þetta er rjett, en hitt veit jeg, að verðlagið hefir valdið óánægju og eins því, að lögin ná ekki í þessu efni jafnt yfir alla. Á þessum fundi var það lagt til, að smjörið væri selt eflir seðlum, líkt og margar aðrar vörur. Jeg skal nú ekki um það segja, hvort almenningur þolir að kaupa smjör fyrir þetta verð, kr. 1,80 pd., en það þori jeg að fullyrða, að nær væri að kaupa það en skemt smjörlíki fyrir kr. 1,30—1,50 pundið. Og það verð jeg að telja heppilegra, að almenningi sje gefinn kostur á því að kaupa smjörið í smáum skömtum. Um hitt er mjer kunnugt, að ekki tjóar að panta lengur smjör hjá Sláturfjelaginu, því að alt er þar pantað, sem það hefir ráð á, og meira til. Hafa um þetta borist margar sögur, sem jeg læt inn um annað eyrað og út um hitt; það er sagt að efnamenn og þeir, sem af hendingu hafa fengið vitneskju um, að þarna væri unt að fá smjör, hafi pantað mikið; 2—3 kvartel í einu, en hvernig sem því er farið, þá er víst, að alt smjörið er fest. Þess vegna væri rjett, ef stjórnin sæi sjer það fært, að takmarka sölu á þessari vöru, líkt og ýmsum öðrum, og ónýta pantanir þær, sem þegar hafa verið gerðar.

Þess er ekki að dyljast, að það er talsverð gremja manna á meðal, ekki út af hámarksverðinu, að það var sett, heldur út af því, að það kemur ekki að gagni nema einstöku mönnum. Jeg verð líka að vera sammála ályktun þessa borgarafundar í Reykjavík, að jeg sje ekki, hvert gagn hlýst af verðlaginu, úr því að svona er komið. Jeg sje enga ástæðu til þess að leggja haft á söluna, úr því að það kemur ekki að haldi öðrum en þeim, sem sist þurfa þess við.