31.07.1917
Neðri deild: 21. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1214 í C-deild Alþingistíðinda. (3590)

97. mál, hámarksverð á smjöri

Flm. (Sigurður Sigurðsson):

Jeg kemst ekki hjá því að svara einstökum atriðum, þótt hv. þm. Dala. (B. J.) og hv. samþingismaður minn (E. A.) hafi svarað sumu, er jeg annars myndi hafa vikið að. Jeg skal byrja á hv. 1. þm. Reykv. (J.B.) og enda á hæstv. forsætisráðherra.

Hv. 1. þm. Reykv. (J.B.) las upp langa skýrslu um smjörverð hjer og annarsstaðar og um starf verðlagsnefndarinnar. Það getur alt verið gott og blessað, en það kemur ekki þessu máli við. Verðlag á útlendu smjöri kemur okkur ekki við. Bæði erum við útilokaðir frá að ná í það smjör, og svo er þörf íslenskra bænda fyrir að fá smjör sitt vel borgað síst minni en annara bænda. Yfirleitt lít jeg svo á, að það sje hæpið að leggja hámarksverð á innlendar vörur, eins og smjörið. Meiri ástæða væri til að snúa sjer að útlendu vörunni. En að byrja á einstökum íslenskum afurðum er undir öllum kringumstæðum rangt. Menn segja, að það og ætti það ekki að þykja óhæfa nú á tímum. Þetta eftirlit áttu sýslumenn að annast. Jeg vænti þess, að nefndin fari nú að starfa að þessu.

Það er nú á allra manna vitorði, að landssjóðsverslunin selur vörur sínar mjög dýrar, svo dýrar, að stöku kaupmenn hafa selt þar fyrir neðan. Eins er það vitanlegt, að eins og verð varanna hækkar nú mjög skyndilega með hverjum skipsfarmi, þá geta kaupmenn, sem liggja með einhverjar vörubirgðir, hækkað undir eins verð þeirra þegar næsti farmur kemur og landssjóður hefir kveðið upp verð á sinni vöru. En verðlagsnefndin ber ekki við að skifta sjer af slíku. Hún tekur aftur á móti það ráð að segja innlendri framleiðslu stríð á hendur, og afleiðingin af því er þegar orðin sú, að verð vörunnar hækkar í þeim hjeruðum, sem varan var í lægra verði en nefndin ákveður, en aftur á móti er varan ekki fáanleg á öðrum stöðum, nema gegn vöruskiftum, svo að ákvæði nefndarinnar koma hvergi að gagni, en eru alstaðar til ills eins. Það er t. d. á allra vitorði, að það smjör, sem Reykjavík hefði fengið, ef nefndin hefði ekki sett þetta hámarksverð, er nú selt á Suðurnesjum í skiftum fyrir fisk, en Reykjavík fær ekki neitt.

Jeg get tekið undir það með hæstv. forsætisráðherra, að best væri að taka alveg valdið af nefndinni, því að hún hefir ekkert gert nema það, sem leitt hefir til óhagræðis, og orðið þar að ógagni, sem það átti að hjálpa. Jeg álít sem sagt, að ekki sje rjett að takmarka neitt verð á innlendum vörum, því að það kemur aldrei að tilætluðum notum, og er auk þess í eðli sínu ranglátt, meðan útlenda varan er ekki tekin eins fyrir.