31.07.1917
Neðri deild: 21. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1218 í C-deild Alþingistíðinda. (3592)

97. mál, hámarksverð á smjöri

Einar Arnórsson:

Jeg get byrjað á endanum, orðum hv. þm. N.-Þ. (B. Sv.). Jeg er sammála honum um það, sem hann sagði um tillöguna. En þó að verðlagsnefndinni hafi missjest í einu atriði, getur hún vel gert gagn í öðru. Það þyrfti því að athuga vel, áður en að því yrði hrapað að afnema verðlagsnefndina.

Hæstv. forsætisráðherra taldi, að gagn hefði orðið að hámarksverðinu á smjöri.

Jeg þori að fullyrða, að fyrir Reykvíkinga hefir ekkert gagn orðið aðþví. Það hefir ekki aukið smjörframleiðsluna, heldur þvert á móti. Það hefir ekki orðið því fólki að gagni, sem helst þurfti þess með. Því var skotið fram, að smjörinu hafi verið lofað í stórskömtum. Það gæti verið matvælanefndinni að kenna. Reyndar sagði einn af mönnunum, sem í henni eru, á borgarafundi, sem var haldinn hjer nýlega, að hún hafi ekki haft heimild til að hlutast til um það mál. En vitanlega hefði hún getað snúið sjer til stjórnarráðsins, eða stjórnarráðið tekið upp hjá sjálfu sjer, að skifta smjörinu jafnara meðal fólks. Forsætisráðherra gat þess, að smjörið hafi verið selt í kvartelum. En hvað er í vegi fyrir því, að það sje selt í smærri skömtum ? Afhendingin hefði orðið ofurlitlu dýrari, en jeg er viss um, að fólk hefði rifið smjörið út jafnharðan og það barst að, fyrir því, svo að við skemdum var eigi hætt.

Þá kem jeg að því atriði, sem bæði forsætisráðherra og þm. Stranda (M P.) hafa minst á, á undan mjer.

Þessu má fyrst svara með því, að till. fer alls ekki fram á að beina til stjórnarinnar að gera neitt, sem ekki er lögmætt. Í sjálfum lögunum um verðlagsnefnd stendur, að skjóta megi ákvörðunum hennar til stjórnarráðsins til fullnaðarúrslita. Með öðrum orðum, það liggur fyrir innan heimildarsvið stjórnarinnar að breyta eða nema úr gildi úrskurði nefndarinnar. Þetta, sem till. fer fram á, getur því ekki legið utan valdssviðs stjórnarinnar.

Nú má ef til vill segja, að engin krafa um þetta hafi komið fram frá hlutaðeigendum, þótt þessi till. yrði samþykt hjer í þinginu, en hana mun engin vandræði að fá, ef vill.

Hitt er annað mál, hvort stjórnin sjer sjer fært eða skylt að verða við þessari ályktun. Getur vel verið, að stjórnin áliti hámarksverð gagnlegt á þessari vöru og telji þetta hæfilegt verð. En þó er það ólíklegt, þar sem stjórnin hefir í reyndinni að nokkru felt ákvæði verðlagsnefndar í burt, með því að kaupa smjör hærra verði.

Annars væri það mjög gott fyrir deildina, ef hún gæti fengið skýlausa yfirlýsingu frá hæstv. stjórn um, að ályktun þessi yrði tekin til greina eða ekki, því að þá kæmi fram, hvort nokkuð þýðir að samþykkja. Ummæli hæstv. forsætisráðherra áðan gat jeg ekki skilið sem beina synjun þess að taka ályktunina til greina, ef hún yrði samþykt. En þótt nú hæstv. stjórn gæfi slíka yfirlýsingu, og deildin sæi þá ekki til neins að samþykkja till., þá hefir þó með þessum umræðum verið vakin athygli hennar á úthlutun smjörs þess, sem stjórnin hefir keypt. Væri þá gott, ef hæstv. stjórn tæki þær athugasemdir þingmanna til greina og breytti sölufyrirkomulaginu. Jeg held, að það væri gott fyrir bæjarbúa, og auk þess holt og hentugt fyrir sjálfa hæstv. stjórn, ef hún gerði þetta. Það getur ekki verið tilgangur hæstv. stjórnar að skapa óánægju í landinu að óþörfu.

Jeg vildi þá beina þeim tilmælum til hæstv. stjórnar, að hún gæfi deildinni yfirlýsingu um þessi tvö atriði. Um síðara atriðið veit jeg að vísu, að hún hefir enga þingskapalega skyldu til að gefa yfirlýsingu, en jeg vænti svo góðs af henni, að hún geri það.

Einhver hv. þm. sagði, að nú væri orðið of seint í ár að kippa þessu í lag. Það er rjett, en þó ekki að öllu leyti. Jeg get hugsað, að ef bændur þættust vissir um viðunanlegt verð fyrir smjörið, gæti það hvatt þá til að setja fleiri kýr á vetur og auka smjörframleiðsluna, en ella gætu þeir álitið, að sú búskaparaðferð borgaði sig ver en sauðfjárbú, og settu því á vetur fleira fje en ella, en fækkuðu kúm.