03.08.1917
Neðri deild: 24. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í C-deild Alþingistíðinda. (3602)

97. mál, hámarksverð á smjöri

Flm. (Sigurður Sigurðsson):

Út af síðustu yfirlýsingu hæstv. forsætisráðherra, að hann treysti sjer ekki til að framfylgja tillögunni, vil jeg leyfa mjer að stinga upp á, að till. verði vísað til landbúnaðarnefndar, því að þangað fer einnig sennilega frv. það, er hann mintist á. — Áskorun hv. 1. þm. Reykv. (J.B.) um að nefna nafn þess úr verðlagsnefndinni, er jeg átti við, ætla jeg ekki að verða við, vegna þeirra, er mjer sögðu.

Hv. þm V.-Ísf. (M. Ó.) virði jeg ekki svars.