11.08.1917
Neðri deild: 31. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1232 í C-deild Alþingistíðinda. (3612)

152. mál, landsspítalamálið

Flm. (Magnús Pjetursson):

Að eins örfá orð, út af þeim misskilningi hæstv. forsætisráðherra, að fjárveitinganefnd ætlaðist til, að þessi væntanl. nefnd sæti á rökstólum í 4 ár. Fjárveitinganefndin leggur ekkert til um það, heldur lætur þess getið í greinargerðinni, að landlæknir búist við því, að þann tíma þurfi til undirbúnings.