13.08.1917
Efri deild: 29. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 772 í B-deild Alþingistíðinda. (362)

13. mál, einkasöluheimild landsstjórnarinnar á steinolíu

Magnús Torfason:

Jeg og háttv. 2. þm. G.-K. (K. D.) eigum hjer 2 brtt., á þgskj. 211, þar sem farið er fram á, að þessu 4 kr. gjaldi sje skift jafnt á milli landssjóðs og veltufjár- og varasjóðs verslunarinnar, í stað þess, að landssjóður fái mikinn meiri hluta gjaldsins, en verslunin einungis hluta þess.

Ástæðan til þessa er sú, að eigi þessi steinolíuverslun að verða að gagni, þá er enginn vafi á, að búa þarf til ýmisleg tæki, er kosta afarfje. Þess vegna er nauðsynlegt, að varasjóður verslunarinnar aukist sem fyrst. Komist landsverslunin á, er ekki ætlast til, að olían verði flutt á tunnum, heldur í sjerstökum steinolíuflutningaskipum. En til þess þarf að eiga olíugeyma eða olíubrunna, er kosta stórfje. En að eiga ekki olíugeyma er stórskattur á versluninni. Tunnurnar, sem nú er flutt olía í, eru oft illa lekar, og hefir komið fyrir, að alt að 25% af steinolíunni hafa lekið niður. Flutningstækin verður fyrst og fremst, að bæta, því að það er skylda landsstjórnarinnar að sjá um, að verslunin verði verulega hagkvæm. Það er sjálfsagt, að það verður að haga steinolíuversluninni svo, að hún verði öllum hagkvæm.

Það er sagt hjer í 2. málsgr. 3. gr., að það eigi að öðru leyti að selja olíuna fyrir það verð, er liðlega svarar innkaupsverði og öllum kostnaði, og getur þetta orð »liðlega« hjer eigi þýtt annað en að það sje heimilað að leggja á olíuna, enda er það augljóst, að svo lengi, sem olían er flutt á tunnum, þá verður að leggja ríflega á hana, ef olíuverslunin á að vera skaðlaus. Og jeg er ekki í neinum vafa um það, að það á að styrkja varasjóð sem mest og sem fyrst.

Því er haldið fram af þeim, sem mæla 4 kr. skattinum bót, að hjer sje ekki um háan skatt að ræða, en það er alls ekki rjett. Í venjulegum árum mun mega segja, að steinolíufat kosti 10 kr., og að leggja þá 4 kr. skatt á það er hár skattur. Það er 40%, sem skattupphæðin getur numið. Þetta sjá allir að er afarhátt, einkum er þess er gætt, að hjer er um nauðsynjavöru að ræða. Við vitum, að álagning á nauðsynjavörur er yfirleitt lítil; fiskkaupmenn eru ánægðir þegar þeir græða 10%, og álagning á erlenda nauðsynjavöru er oftast minni; á sykri var hún fyrir stríðið t. d. nærfelt engin.

Þingið verður að gæta þess, að hjer er um nýja braut að ræða. Hygg jeg, að það sje ekki góð braut, sem gengin er, ef landssjóður vill afla sjer mikilla tekna með háum tollum eða álagningu á nauðsynjavörur. Það er kunnugt, að landsverslun virðist hafa byr nú; það hefir komið fram hjer á þingi, að landið reki verslun með sement, og það er ekki með öllu ástæðulaust um salt, kol og gaddavír. Og eigi að fara að ganga þá braut, að reka þessa verslun, þá verða menn strax í öndverðu að gera sjer ljóst, hversu mikinn skatt megi á það leggja, en jeg hygg, að hann megi ekki vera jafnstór og hjer er ráð fyrir gert. Jeg býst ekki við því, að Alþingi vilji láta sjávarútveginn greiða svo háan skatt. En jeg er ekki í neinum vafa um það, að sjávarútvegurinn og kaupstaðarbúar nota að minsta kosti 90% af allri steinolíu, sem notuð er hjer á landi.

En jeg legg mesta áherslu á það, að arðinum af versluninni sje skift jafnt á milli landssjóðs og varasjóðs verslunarinnar, því að það er einkar áríðandi, að hann sje gerður sem öflugastur, og ef brtt. sú, er jeg ber fram um það efni ásamt háttv. 2. þm. G.-K. (K. D.), verður samþykt, þá legg jeg minni áherslu á skattinn, þótt jeg telji rjett, að hann verði lækkaður. En geta vil jeg þess, að jeg tel það óvíst, að olían verði nokkru ódýrari þótt frv. nái fram að ganga, einkum fyrst, meðan verslunin er að komast í lag.

Hið eina, er við getum gengið að sem vísu, er að skatturinn verður á oss lagður.