01.09.1917
Neðri deild: 49. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í C-deild Alþingistíðinda. (3620)

173. mál, skólahald næsta vetur

Bjarni Jónsson:

Jeg hefi verið í annari þeirra nefnda, er tillögu þessa flytja, og vitað um samningu hennar. Jeg hefi ekki treyst mjer til annars en fylgja nefndunum að málum, en það er rjett hjá hv. frsm. (M.P.), að nefndarmenn lögðu misjafnlega mikla áherslu á ýms þau atriði, er hann nefndi till. til stuðnings. Jeg skal nú geta þess, á hvað jeg legg höfuðáhersluna.

Á sparnaðarástæðuna legg jeg enga áherslu, enda vafasamt, hvort nokkur sparnaður verður. Það fer eftir því, hvernig fer um kolabirgðir stjórnarinnar, hvort hún þarf að selja þær undir verði eða ekki. Það gæti orðið bitamunur, en ekki byrðar. Það, sem vakti fyrir mjer, var, að hættulegt væri að safna mörgu fólki til Reykjavíkur, ef lítið yrði um fæðu; þá var að mínum dómi rjettara að láta kenslu í skólum niður falla. Jeg hafði hugsað mjer, að Háskólinn væri þessu undanþeginn, uns jeg heyrði, að þar yrði ekki öðru brent en koksi, en þá taldi jeg ekki annað ráð en annað tveggja, leggja niður kenslu einnig þar, eða að öðrum kosti flytja hana í annað hús.

Nú hefir það rifjast upp fyrir mjer, að hægt er að setja ofna í 2 eða 3 stofur í Háskólanum. Þeir hafa verið þar áður, vegna bókasafna, er þar höfðu aðsetur. Nú má vel vera, að halda megi uppi nokkurn veginn reglulegri kenslu í þeim stofum, og þá fá það húsnæði, er þá vantar, í lærða skólanum.

En sultinn hefi jeg hræðst mest, þar sem svo margir eru saman komnir. En er jeg nú heyri af stjórnarinnar munni, að sú hætta er ekki mikil, fara ástæður till. þessarar mjög að veikjast.

Það er rjett, að kolin gefa eina höfuðástæðuna, af því að ef svo færi, að kolaskortur yrði fullkominn, myndi það valda algerðri stöðvun skipaferða, sem eru okkur lífsnauðsyn. Væri þá löggjafarvaldi og stjórn mjög vitskortur orðinn, ef kolunum væri svo brent í skólum, að skipaferðir gætu hindrast þess vegna. En ef stjórnin hræðist ekki kolaskortinn, má gera ráð fyrir, að hún noti heimildina, eftir því sem hæstv. forsætisráðherra sagði.

En þessar tvær ástæður, sulturinn og kolaskorturinn, rjeðu því, að jeg fylgdi nefndunum. Ef þær ástæður hverfa, tel jeg, að kensla eigi að haldast.

Jeg sje ekki, að það komi hjer neitt til greina, hvað stríðinu líður. Ef bráðnauðsynlegt er, að kensla falli niður, má svo vera nú þegar, án tillits til framtímans, en þetta stríð stendur vafalaust mjög lengi, Það eru litlar sem engar bækur til, að því linni enn að sinni, en miklu meiri líkur til, að enn sverfi stórum að þessari þjóð.

Jeg heyrði nú á ræðu hæstv. forsætisráðherra, að hann myndi nota heimildina með þeim hætti, að Háskólanum yrði haldið áfram með meiri tilsparnaði, og mjer skildist mentaskólanum líka, og átel jeg það ekki, ef stjórnin er viss um, að þær höfuðástæður, er jeg nefndi áður, sjeu ekki fyrir hendi. Aðrar þær ástæður, er nefndar hafa verið, met jeg minna, og læt svo útrætt um málið, en vildi geta þessa, til að sýna, á hverju jeg hefði bygt, er jeg fylgdi nefndunum um þessa till. Er sjálfsagt, að stjórnin fái heimild til að halda skólum uppi með þeim hætti, er hjer var sagt, en ástæður geta breyst til hins verra, og þá sjálfsagt, að stjórnin hafi og heimild til að loka skólunum. Þessa heimild er að finna í till. þessari.