01.09.1917
Neðri deild: 49. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1252 í C-deild Alþingistíðinda. (3626)

173. mál, skólahald næsta vetur

Einar Jónsson:

Aðalspurningin er það, hvort hægt sje að ná í kol og eldsneyti handa skólunum. Ef vissa væri fyrir þvír að hægt væri að fá nóg kol og eldsneyti, þá væri ekkert vit í öðru en að fella tillöguna. Það er hvort sem er ekki nema lítill hluti af kostnaðinum við skólahaldið, sem sparast við það að loka þeim. Því að varla dettur nokkrum manni í hug að fella neitt niður af launum kennaranna, þótt þeir hafi ekkert að gera. Það er ekki gott að reikna það út, hve mikið tjón það getur verið fyrir nemendur að tapa einu ári frá námi sínu. Að vísu verður kostnaðurinn mikill við að sækja skólana. En ef menn vilja leggja út í það, og skólarnir geta verið opnir, þá á Alþingi, ekkert með að taka fram fyrir hendur manna með það. Jeg álít, að álits skólanefnda og forstöðumanna hafi ekki verið leitað, eins og þyrfti, þótt það skifti auðvitað mestu máli, ef stjórnin heldur, að hægt verði að útvega nóg ljós og nógan hita. — Það er til gamalt máltæki, sem segir, að til þess sjeu skólar settir, að skerpa næmi. Þess gerist ekki minni þörf nú en endranær að hlynna að mönnum í því efni. Ef líkur eru til þess, að hægt verði að halda skólunum uppi, þá er ekki ástæða til að vera með tillögunni, nema hún sje að eins skoðuð sem viðvörun til stjórnarinnar um að hleypa sjer ekki út í neina vitleysu.