01.09.1917
Neðri deild: 49. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1253 í C-deild Alþingistíðinda. (3628)
173. mál, skólahald næsta vetur
Forsætisráðherra (J.M.):
Eins og jeg hefi áður tekið fram get jeg ekki svarað því nú, hvernig stjórnin mundi nota þessa heimild. En um það, hvort ástæða sje til að taka tillöguna aftur, þá held jeg, að það sje ekki. Það getur ekki verið nema gott fyrir stjórnina að fá heimildina. Ef henni sýndist ástæða til að láta skólana halda áfram, þá getur hún það eftir sem áður. Jeg skildi svo orð hv. frsm. (M.P.), að það væri ekki tilgangur tillögunnar, að ráðuneytið væri bundið við það að láta skólana niður falla Hitt er auðvitað mál, að hvað sem stjórnin ræður af, þá gerir hún það upp á sína ábyrgð; það er svo sem alveg sjálfsagt. Jeg skildi því orð hv. frsm. (M.P.) nokkuð á annan veg en hv. 2. þm. Árn. (E.A.) og hæstv. atvinnumálaráðherra. Jeg skoða því tillöguna að eins sem bendingu um það að fara varlega og spara við skólana eins og hægt er.