04.08.1917
Neðri deild: 25. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1275 í C-deild Alþingistíðinda. (3656)
75. mál, endurskoðun vegalaganna
Fyrirspyrjandi (Sigurður Sigurðsson):
Jeg get ekki látið vera að lýsa yfir því, að svar hæstv. atvinnumálaráðherra kom mjer nokkuð á óvart. Engan veginn er hægt að segja, að svarið væri út í hött, en það var í þann veg, að ekkert hefði verið gert, ekkert verið hægt að gera og ekki ástæða til að gera neitt. (Atvinnumálaráðh.: Þetta er ekki rjett).
Þegar frumvörp til breytinga á vegalögunum hafa legið fyrir undanfarandi þingum, þá hafa þau verið borin undir landsverkfræðinginn eða hann kvaddur til ráðs. En þar sem Jón Þorláksson er sjálfur höfundur vegalaganna, þá hefir hann til skamms tíma yfirleitt verið á móti öllum breytingum á þeim, og sannast þar á honum máltækið, að hverjum þykir sinn fugl fagur. En þó að þessi heiðarlegi dánumaður hafi samið lögin, þá hefði hæstv. atvinnumálaráðherra verið óhætt að viðurkenna, að sumir líta svo á, að margt sje við þau að athuga, og varla hefði þingið skorað á stjórnina að endurskoða lögin, ef það hefði litið eins á og landsverkfræðingurinn. Nú er kominn nýr verkfræðingur. Verið getur að hinn nýi maður treysti sjer ekki að leggja út í breytingar á lögunum að svo stöddu. Það getur verið nokkur afsökun fyrir stjórnina. En hann kynnist þessum málum nú brátt, og má þá ætla, að hann taki til óspiltra málanna þegar frá líður.
Aðalástæðan til þess, að þingið sneri sjer til stjórnarinnar með þetta mál, er sú, að hún hefir betri tök á að ráða menn til að undirbúa lög heldur en einstakir þm. hafa. Enda er þm. óspart núið því um nasir, að þeir komi með helst til mörg frv. og miður undirbúin en skyldi. Þess vegna er eðlilegt, að menn snúi sjer til stjórnarinnar í þess konar vandamálum. Auk þess lít jeg svo á, að lagabreytingin væri betur undirbúin, ef landsverkfræðingurinn stæði á bak við, og málið því líklegra til að fá framgang. Alt þetta virðast vera eðlilegar ástæður.
Hæstv. atvinnumálaráðherra vildi ekki kannast við, að nein óánægja væri með vegalögin. Má vera, að hún hafi ekki borist honutn til eyrna. Á þingmálafundum hefir þessu máli ekki verið mikið hreyft, nema í Árnessýslu. En jeg get frætt hæstv. atvinnumálaráðh. á því, að óánægjan er mikil, og hún fer stöðugt vaxandi, eftir því sem vegunum fjölgar. Sjerstaklega hjelt jeg þó, að borist hefði til stjórnarinnar óánægja með frágang og afhendingu veganna af hálfu verkfræðinganna. (Atvinnumálaráðh.: Það er framkvæmdaratriði, sem ekki er lögunum að kenna).— Getur verið, en getur líka stafað af því, að skýrari lagastaf vanti, til að styðjast við í þeim efnum.
Viðvíkjandi 2. lið tillögunnar, um viðhald veganna, leit hæstv. atvinnumálaráðh. svo á, að sýslusjóðir hefðu nóg ráð til að borga brúsann og leggja á útgjöld í því efni. Jeg skal játa ókunnugleika minn um hag sýslusjóða yfirleitt. En jeg veit ekki til þess, að sýslusjóðir hafi ábyggilega tekjustofna, til þess að fá svo mikið fje, sem þarf til að kosta þetta mikla viðhald. (Atvinnuumálaráðherra: Slæmur ókunnugleiki).
Um 3. atriðið skal jeg ekkert segja. En óskandi væri, að verkfræðingunum tækist að finna ráð til að gera vegina haldbetri og sterkari en þeir eru. Það vita allir, að því miður hefir um of verið kastað höndum að vegagerðinni hjá okkur. Auðvitað hefir fjárskortur ráðið þar miklu um. — Hæstv. atvinnumálaráðherra skaut því að mjer, að ef jeg væri verulega óánægður með vegalögin, þá hefði jeg átt að koma með frv. til breytinga á þeim, því að jeg væri til þess óragur að flytja frumvörp. (Atvinnumálaráðh.: Það var sagt til hróss!). — Á hina hliðina er þingmönnum ámælt fyrir að flytja mjög mörg frumvörp. En hvað sem því líður tekur það tíma að undirbúa og semja mikilsverð frumvörp. En þar sem málinu var skotið til stjórnarinnar á síðasta þingi, þá áleit jeg, að jeg gæti sparað mjer þá fyrirhöfn að hafa frumkvæði að breytingum þeim, sem jeg tel þó bráðnauðsynlegar.
Jeg hafði hugsað mjer að koma með rökstudda dagskrá. (Atvinnumálaráðh.: Það er varla fundarfært). Reyndar heyri jeg á hæstv. atvinnumálaráðh., að stjórnin vilji helst ekkert við málið eiga og að landsverkfræðingurinn telji enga ástæðu til að gera breytingar á lögunum. En jeg sætti mig ekki við þetta svar. Jeg verð því að halda við fyrirætlun mína og óska þess, að upp verði borin svo hljóðandi rökstudd dagskrá:
Í fullu trausti þess, að landsstjórnin endurskoði vegalögin frá 22. nóv. 1907, samkvæmt þingsályktun Alþingis, dags. 27. ágúst 1915, og leggi fyrir næsta Alþingi nýtt frv. til vegalaga, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.