27.08.1917
Neðri deild: 44. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1286 í C-deild Alþingistíðinda. (3668)

155. mál, rannsókn hafnarstaða

Matthías Ólafsson:

Mjer finst umræðurnar hafa snúist um nokkuð annað en fyrirspurnin gefur beint tilefni til. Fyrirspurn þessi er beint framhald af þingsályktunartillögu, sem samþykt var á aukaþinginu í vetur, og sú tillaga var aftur áframhald af samskonar tillögu frá þinginu 1915, um að útvega hafnarverkfræðing til að skoða hafnarstaði og lendingastaði með ströndum fram, einkum þá, er íslenskir verkfræðingar höfðu skoðað áður. Þingið leit svo á, að áður en ráðist væri í dýr verk við hafnargerð eða lendingabætur, þyrfti að fá mann, sem væri sjerfræðingur í þeirri grein, til að athuga þessa staði, og það var gert ráð fyrir, að hann mundi verða að fá frá útlöndum, með því að ekki væri völ á neinum innlendum verkfræðingi, sem sjerstaklega befði lagt fyrir sig hafnargerð; mun stjórnin hafa fengið vilyrði um slíkan mann frá Noregi, en ekki þó orðið úr, að hann kæmi. Það hefir þegar verið skoðað hafnarstæði í Þorlákshöfn og lendingastæði á nokkrum stöðum, svo sem í Keflavík undir Jökli og í Súgandafirði. En margir slíkir staðir eru órannsakaðir enn. Árið 1916 sneri stjórnin sjer til Fiskifjelagsins og bað það að láta í ljós, hvaða staði það teldi mesta þörf á að rannsaka. Það svaraði því, að það teldi brýna þörf á, að rannsakaðir væru lendingastaðir vestur frá Þorlákshöfn og kringum Reykjanes. Það hafa t. d. ýmsir þá skoðun, að gera megi góða höfn í Hópinu í Grindavík, og mundi það stórhagnaður fyrir fiskveiðar um það svæði; þá hafa og verið tilnefndir Ósabotnar í Höfnum og Gerðar í Garði. Enn fremur má nefna til Búðaós, Ólafsfjörð og Dalvík, auk þeirra staða, sem rætt var um í þingsályktunartillögunni í vetur. Jeg geri ráð fyrir, að fyrirspurn þessi sje komin fram af því, að ekki hefir enn neilt komið út af þingsályktunartillögunni í vetur nje tillögunni 1915. Vona jeg nú, að stjórnin skýri frá öllu því, er hún hefir gert til að fá mann til að rannsaka þá staði, sem hjer ræðir um.