13.09.1917
Neðri deild: 59. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1302 í C-deild Alþingistíðinda. (3678)
182. mál, flutningsgjald á landssjóðsvörum
Fyrirspyrjandi (Stefán Stefánsson):
Eftir bendingu, sem jeg hefi fengið frá hæstv. forsætisráðherra, skal jeg taka seinni hluta dagskrárinnar aftur. Meining mín var sú, að flutningsgjaldið væri ekki reiknað af handahófi, eða sett svo fjarri öllum sanni, að það komi mönnum mjög á óvart. Þetta hefir komið fyrir, en það vildi jeg fyrirbyggja. Rjettara hefði mjer virst af stjórninni að kaupa olíuna og flytja hana svo fyrir sæmilegt gjald en að flytja hana með þessum hætti og gera útgerðarmönnum hjer um bil ókleift að nota hana til atvinnurekstrar síns. Kaupmenn hefðu getað flutt olíuna sjálfir fyrir miklu minna fje.