13.09.1917
Neðri deild: 59. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1303 í C-deild Alþingistíðinda. (3681)

182. mál, flutningsgjald á landssjóðsvörum

Fyrirspyrjandi (Stefán Stefánsson):

Það er misskilningur hjá háttv. þm N.-Þ. (B. Sv.), að það fari í bág við 27. gr. stjórnarskrárinnar að samþykkja dagskrá þá, sem jeg hefi borið fram. Fjeð á að taka af landsversluninni, en ekki úr landssjóði, og er slík veiting vel heimil, þó að ekki standi hún í fjárlögum eða fjáraukalögum.