13.09.1917
Neðri deild: 59. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1306 í C-deild Alþingistíðinda. (3686)

182. mál, flutningsgjald á landssjóðsvörum

Stefán Stefánsson:

Eins og fram hefir verið tekið af hv. þm. V.-Sk. (G.Sv.) hafa fyrirspurnir verið afgreiddar með rökstuddri dagskrá í báðum deildum þingsins, svo að þessu leyti er hjer alls ekkert nýtt á ferðinni, enda hefi jeg ástæðu til að ætla, að það sje ekki dagskráin, sem hv. þingdm. eru á móti, heldur mun það vera málið sjálft, sem þeir vilja ekki láta fá framgang, eða aðra þá afgreiðslu, er við megi una fyrir þá, er verst hafa orðið úti, fyrir aðgerðir landsstjórnarinnar.