06.08.1917
Efri deild: 23. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1335 í C-deild Alþingistíðinda. (3704)

100. mál, úthlutun landsverslunarvara

Fyrirspyrjandi (Magnús Torfason):

Út af því, sem hæstv. fjármálaráðh. (B.K.) sagði um verkaskiftinguna í stjórnarráðinu, vil jeg ítreka það aftur, að um öll þessi ófriðarmál eiga allir ráðherrarnir að fjalla sameiginlega, og einnig um úthlutun varanna. Stjórnin er valin fyrst og fremst til þess að sjá um, að sem minst vandræði verði af ófriðnum. Að því er snertir aðdrætti, eiga þeir að standa saman, en hvað úthlutun snertir, þá átti maður úr hverjum flokki að tryggja það, að engin óánægja gæti risið út af því, að neinn flokkur yrði út undan; það er hlutverk, sem hver flokksráðherra verður að sjá um. Vjer verðum að aðgæta það, að því er fjármálaráðh. (B.K.) snertir, að það er sá flokkurinn, sem jeg telst til, sem tók ábyrgð á honum. Það getur vel verið, að einhverjir utanflokksmenn hafi skrifað upp á hans ráðherravíxil; mjer finst það helst liggja í orðum hans, en mjer er alveg ókunnugt um það.

Jeg hefi ekki farið fram á það, að Ísfirðingar fái meira en þeir eiga heimting á, en jeg hefi farið fram á, að þeir verði ekki afskiftir. Að því er olíuna snertir, þá játa jeg það, að Ísafjörður hafi fengið að tiltölu eftir hestöflum, þegar hann (B.K.) var við stýrið, en ekki heldur meira, og það er áreiðanlegt, að Ísfirðingar hafa ekki fengið olíu tiltölulega eftir þörfum. (Fjármálaráðh. B.K.: Það gátu þeir ekki fengið). Já, það var það, sem átti að ráða, og báðir hæstv. ráðh. (B.K.og S.J.) hafa tekið fram að hefði átt að ráða. Og að vera að blanda ísnum inn í þetta getur ekki komið til mála, af þeirri einföldu ástæðu, að ef ís hefði bannað allar ferðir á sjónum, þá hefði orðið lítil þörf á olíu þangað, sem hann var.

Hæstv. fjármálaráðherra (B.K.) var að segja, að skrifstofustjórinn á 2. skrifstofu stjórnarráðsins hefði átt að sanna mjer, að við hefðum fengið ofmikla olíu að tiltölu, en mjer hefir aldrei dottið í hug að játa það, blátt áfram vegna þess, að jeg hafði skýrslu matvælaskrifstofunnar fyrir framan mig, og sú skýrsla sýnir, að aðrir landshlutar hafa fengið meira á sama tíma.

Þá kveðst hæstv. fjármálaráðherra (B.K.) hafa verið að reyna að benda mjer á það, hve altof langt jeg hefði gengið í kröfum mínum, sjer hefði ofboðið. Það hefir líklega verið frekja mín, sem honum hefir ofboðið. En jeg vil minna hæstv. fjármálaráðherra (B.K.) á það, að bæjarstjórnin á Ísafirði og sýslunefndirnar í Norður- og Vestur-Ísafjarðarsýslu sögðu þegar í apríl, að hallæri væri fyrir dyrum, vegna olíu- og saltleysis. Að eins þessari kröfu hefi jeg haldið fram, og hlýtur því broddurinn á þessu að snúa að bæjarstjórninni og sýslunefndunum.

Annars get jeg upplýst það, að ein af bestu verstöðunum við Ísafjörð hefir verið saltlaus um lengri tíma. Það er Hnífsdalur. Þaðan komu sjerstakar kvartanir, og þá fyrst var verulega farið að sinna þessu máli, þótt undan væru gengnar 2 áskoranir frá sýslunefndunum og 2 frá bæjarstjórninni, um að salt vantaði fyrir vestan. Þegar jeg fór að tala um þetta við hæstv. fjármálaráðherra (B.K.), þá þóttist hann alls ekki víla, að þær hefðu komið, svo að jeg held, að það hafi ekki verið óþarft, að jeg vakti máls á því.

Svo er verið að tala um, að Reykjavík hafi orðið afskift. Ja, merkin sýna verkin. Hver báturinn af öðrum kemur vestur til síldveiða, og er ekki annað að sjá en að þeir hafi nóga olíu. Merkilegt væri, ef Reykjavík yrði afskift fremur öðrum, þegar nær allar siglingar hafa komið til Reykjavíkur, en sama sem engar til Ísafjarðar og sáralitlar til annara hafna landsins.

Hæstv. fjármálaráðherra (B.K.) talaði um, að jeg færi ekki rjett með, þar sem vjer hefðum átt rjett á að fá 200 smál. af salti. Jeg fer þar alveg rjett með, en skal geta þess, að eftir að fyrirspurnir komu fram var bætt við Ísfirðinga 100 smál. Það er með öðrum orðum, að fyrirspurnin bar 100 smál. ávöxt fyrir Ísafjörð. (Atvinnumálaráðh : Jeg held, að það hafi ekki verið ástæðan). Ja, svo mikið er víst, að efndir stjórnarráðsins hafa ætið orðið minni en lofað hefir verið, nema í þetta eina sinn. Þó verð jeg að geta þess, að einu sinni fengu Ísfirðingar nærri 50 smálestir af sykri, án þess að þeir bæðu um það. Mjer datt í hug, hvort okkur væri sendur sykurinn til þess að stinga upp í okkur sykurmola, eins og óþekka krakka.

Þá var það misskilningur hjá hæstv. fjármálaráðherra (B.K ), að jeg hafi kvartað um verðið á saltinu. Það var undir eins samþykt. En mjer skildist, þegar jeg átti að samþykkja verðið á því í stjórnarráðinu, að það væri hrætt um, að það gæti ekki komið saltinu út fyrir þetta verð.

Jeg hefði viljað vera betur undir það búinn að ræða þessa fyrirspurn, en af sjerstökum ástæðum hefi jeg ekki getað það. Jeg ætlaði mjer, eftir að fyrirspurnin var borin fram, að leita upplýsinga á matvælaskrifstofunni, en þar var mjer meinað að fá þær, en um ástæðuna fyrir því er mjer ókunnugt. Jeg hefi litið svo á, að alt, sem snerti aðdrættina, ætti að vera leynilegt, en að það, hvernig skiftin væri, þyrfti ekki að vera neitt launungarmál. En stjórnarráðið hefir náttúrlega sínar ástæður fyrir því.

Þá er ein fyrirskipun stjórnarráðsins, sem upplýsir nokkuð í þessu máli, sem sje þegar það fyrirskipaði að selja eitthvað af nauðsynjavörum fyrir hærra verð en áður hafði verið gert. Á Ísafirði var þá ekkert fyrliggjandi af neinum vörum hjá mjer; alt hafði verið etið upp jafnóðum.

Jeg get sem sagt vel skilið, að stjórnin eigi erfitt með að líta í öll horn, en hún verður að gefa sjer tóm til að athuga úthlutun á lífsnauðsynjum og ekki láta ábyrgðarlausa menn ráða fyrir sig; hún verður að svara til alls og hafa alla ábyrgð.

Hvað þessi ummæli mín snertir, þá eru þau fram komin af sömu ástæðu og hv. þm. Ak. (M. .). Hann gat um, að þörf væri á því, að stjórn og bjargráðanefnd athuguðu það vandlega, hvernig best væri að haga úthlutun í framtíðinni. Það mun ekki af veita, sjerstaklega ef erfiðara verður um útvegun en verið hefir.