30.08.1917
Neðri deild: 47. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2329 í B-deild Alþingistíðinda. (3727)
Ráðherraskipti
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg leyfi mjer að skýra háttv. deild frá því, að hans hátign konunginum hefir 28. þ. m. þóknast að veita Birni Kristjánssyni, fjármálaráðherra, lausn í náð frá embætti og skipa í hans stað Sigurð Eggerz, sýslumann, fjármálaráðherra.