15.09.1917
Efri deild: 59. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 2337 í B-deild Alþingistíðinda. (3743)

Starfslok deilda

Kristinn Daníelsson:

Vjer munum allir, háttv. þingdm., með einum huga um það að votta hæstv. forseta viðurkenningu vora fyrir vel unnið starf á þessu þingi.

Hefir hann með ráðdeild og röggsemi leyst af hendi fundarstjórn og úrskurð allra mála.

Viljum vjer því votta honum þakklæti vort og óska þess, að heillaóskir hans til vor rætist á honum sjálfum.

Bið jeg háttv. þm„ sem eru mjer samdóma, að votta það með því að standa upp.

(Þingmenn tóku undir þetta með því að standa upp).