02.07.1917
Efri deild: 1. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 19 í B-deild Alþingistíðinda. (3759)
Stjórnarfrumvörp lögð fram
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg leyfi mjer hjer með að leggja fyrir hv. deild af stjórnarinnar hálfu frumvörp þau, er hæstv. forseti las upp.
Um frumvörpin finn jeg ekki ástæðu til að athuga neitt sjerstaklega. Væntanlega gerir viðkomandi ráðherra nánari grein fyrir frumvörpunum, er þau verða tekin á dagskrá til umræðu í fyrsta sinni hjer í háttv. deild.