20.08.1917
Neðri deild: 38. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 143 í C-deild Alþingistíðinda. (3797)
31. mál, nauðsynjavörur undir verði
Sveinn Ólafsson:
Sumt af því, sem jeg hafði ætlað að nefna, hefir verið tekið fram af hæstv. atvinnumálaráðherra, og sumt af hv. 2. þm. S.-M. (B. St.).
Eitthvað er að athuga við öll þessi frv., en það er misjafnlega mikið. Öll stefna þau að sama marki, þótt leiðirnar, sem þau vísa á, sjeu þrjár. Sú fyrsta er, að nokkur hluti verðhækkunar á nauðsynjavörum sje greiddur úr landssjóði. Önnur, að mönnum sje veittur óafturkræfur dýrtíðarstyrkur. Og þriðja, að mönnum sje veitt fje að láni með vægum kjörum. Af þessum þremur aðferðum finst mjer sú síðastnefnda nálgast mest að vera nothæf.
Fyrsta aðferðin hefir tvo stóra galla. Fyrst og fremst eru engar líkur til, að það nægi, þótt greiddur væri einhver hluti verðhækkunarinnar, því að gera verður ráð fyrir því, að ýmsir geti ekki einu sinni greitt lágmarksverðið, og yrði þá að grípa til annara ráða. Í öðru lagi myndi þessi uppbót lenda að töluverðu leyti hjá þeim, sem engrar uppbótar þurfa með. Fjöldi manns myndi fá dýrtíðarstyrk allsendis ófyrirsynju.
Önnur aðferðin, að veita óafturkræfan styrk þeim sem þyrftu, gæti í fljótu bragði virst bæta úr þörfunum. En hún yrði afskaplega örðug í framkvæmdinni. Það yrði freisting fyrir sveitarstjórnir að mæla með mönnum, sem ekki hefðu brýna þörf. Aðhaldið er ekkert eftir frumvarpinu. Jeg þykist því mega fullyrða, að slíkur styrkur yrði mjög misbrúkaður, og að þetta reyndist glæfraleið.
Síðasta aðferðin, að veita sveitarstjórnum lán, sem þær veiti aftur einstökum mönnum, án kvaða um rjettindamissi, hefir kosti beggja hinna aðferðanna og ýmsa fleiri umfram. Líka gerir hún ráð fyrir óbeinum styrk, það er að segja atvinnuveitingu. Það er einhver hin besta hjálp, sem hægt er að veita, að hjálpa mönnum til að hjálpa sjer sjálfir, og við þá hjálp skapast heilbrigður metnaður. Þar sem ætlast er til að skuldirnar verði afturkræfar, munu menn fara varlegar í að stofna til þeirra en ella. Jeg hygg því, að þessi tillaga yrði í reyndinni sú þjálasta og sú sem nær best tilganginum. Jeg skal ekkert segja um, hve mikil þessi upphæð yrði eða lánveiting. Um það getur enginn sagt að svo komnu. Það er allsendis óvíst, hve nær stríðið endar. En því gæti jeg trúað, að hún yrði snögt um meiri en hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) hjelt.
Jeg hallast ákveðið að frv. meiri hlutans, en geri þó ráð fyrir, að það verði lagað í ýmsum atriðum áður en það verður afgreitt.