05.07.1917
Neðri deild: 3. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 791 í B-deild Alþingistíðinda. (382)

14. mál, fyrirhleðsla fyrir Þverá og Markarfljót

Einar Jónsson:

Hæstv. atvinnumálaráðherra hefir undirbúið þetta frv. og lýst skýrt og greinilega tildrögunum til þess, að það er fram komið. Hefi jeg í raun rjettri engu þar við að bæta, en af því að hæstv. atvinnumálaráðherra hefir vitnað til mín og sagt, að jeg mundi geta gefið upplýsingar í málinu, og af því að jeg veit, að sumir hv. þm. eru algerlega ókunnugir staðháttum þar eystra, finn jeg ástæðu til að fara um málið nokkrum orðum.

Í stórum dráttum lýst, er þetta mál svo vaxið, að ýmsar bestu sveitir Rangárvallasýslu eru þegar að nokkru leyti eyðilagðar og standa í mikilli hættu framvegis. Má nefna þar til hina fögru Fljótshlíð, þar sem næstum hver einasta jörð liggur í hættu fyrir ánni; en auk þess er líka Vestur-Eyjafjallahreppi, Landeyjahreppum báðum, Rangárvallahreppi og að nokkru leyti Ásahreppi, mikil hætta búin. Fyrirtækið er svo stórvaxið, að allir hljóta að sjá, að sýslufjelaginu einu er ókleift að annast kostnaðinn að öllu leyti. En þar sem það er fúst til að bera ¼ hluta kostnaðarins, sem mun nema um 40 þús. kr. eða meiru, þá er fengin sönnun fyrir því, að fyrirtækið er nauðsynlegt þeirra vegna.

Það erfitt að svara háttv. þm. S.-Þ. (P. J.), þegar hann spyr, hvað landssjóður fái í staðinn fyrir það fje, sem honum er ætlað að leggja fram til fyrirtækisins, því að jeg býst við, að hann fái ekki annað í staðinn heldur en það, að þarna verður ræktað land, sem landið í heild komi til að njóta góðs af. Það er raunar furðulegt, að slík spurning skuli koma fram frá þessum háttv. þm. (P. J.), þar sem það er öllum vitanlegt, að hann hefir einatt verið öflugur stuðningsmaður slíkra eða svipaðra fyrirtækja. En þar sem hann heldur því fram, að þessu fje sje stungið í einstakra manna vasa, þá er það að því leyti rjett, að hjer á næstum hið sama sjer stað, og þegar fje er lagt til hafnargerða, vega o. s. frv. Þar af fær landssjóður venjulega ekki neinar beinar tekjur, en hins vegar verður landinu í heild hagur að slíkum framkvæmdum.

Háttv. sami þm. (P. J.) mintist á, að rjett væri að leggja verðhækkunarskatt á þær jarðir, sem njóta góðs af þessu fyrirtæki. Er jeg því í sjálfu sjer ekki ósamþykkur, en álít þó, að því verði að fresta þangað til jarðeigendur eru lausir við þann kostnað, sem þeir taka að sjer í þeim fjórða hluta, sem þeim er ætlað að leggja fram.

Enn fremur spyr háttv. þm. (P. J.) um opinberar eignir á þessu svæði. Læt jeg mjer á sama standa, hvort jarðirnar eru opinber eign eða einstakra manna, ef þær eru á annað borð góðar. Annars get jeg gefið þær upplýsingar, sem háttv. 1. þm. Árn. (S. S.) hefir reyndar þegar bent á, að á þessu svæði liggur t. d. höfuðbólið Oddi og höfuðbólið Breiðabólsstaður, sem bæði eru opinberar eignir. Fleiri jarðir mætti nefna, sem eru eign hins opinbera á þessu svæði, og ofdýrt er landinu að láta eyðileggjast, ef annars er kostur. En þótt landssjóður eigi ekki allar jarðirnar, sem þarna eru í hættu, þá nýtur hann samt góðs af þessu fyrirtæki á ýmsan hátt, og er því skylt að styrkja það, úr því að þeim einstökum mönnum, sem að því standa, og hlutaðeigandi sýslufjelagi er það ofvaxið.

Viðvíkjandi spurningunni um, til hvaða nefndar þetta mál eigi að fara, get jeg sagt það, að jeg treysti landbúnaðarnefndinni vel fyrir mitt leyti, þótt jeg verði að játa, að í henni sitja fleiri menn ókunnugir staðháttum heldur en í allsherjarnefnd. En af því að jeg á sæti í allsherjarnefnd, vil jeg ekki stinga upp á, að því verði vísað þangað.