07.07.1917
Neðri deild: 5. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 848 í B-deild Alþingistíðinda. (429)
16. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslumönnum landssjóðs
Jón Jónsson:
Jeg álít þessar umræður um málið allóþarfar. Jeg hugði, að þetta væri ekki nýmæli, og að það gæti því gengið til nefndar. Jeg ætlaði mjer ekki að segja orð um frv. við þessa umr., en af því að hjer hafa fallið orð, sem jeg get ekki skrifað undir, stóð jeg upp.
Það er virðingarvert af landsstjórninni að hafa reynt að draga úr dýrtíðaruppbótinni, þótt hún hafi hins vegar ekki gert það svo mikið, að minni hlutinn frá síðasta þingi geti sætt sig við það. Það getur verið, að hæstv. stjórn hafi haldið, að þingviljinn hafi orðið ofan á í vetur, en jeg held, að sjerstök atvik hafi gert, að svona fór í vetur, en að meiri hluti þingsins hafi viljað hafa það öðruvísi. Jeg hugði, að stjórninni hefði verið þetta ljóst, og hefði hún því átt að ganga lengra í sparnaðaráttina en hún hefir nú gert. Jeg sje, að stjórnin ætlast til, að sýslu- og hreppsfjelög borgi starfsmönnum sínum dýrtíðaruppbót, og finst það dálítið skrítið, að sveitarfjelögum skuli vera ætlað að veita póstafgreiðslumönnum, símamönnum og brjefhirðingamönnum slíka uppbót. Annað mál er með það, að sveitirnar borgi oddvitum, kennurum o. s. frv. dýrtíðaruppbót. Það er vitanlegt, að þeir, sem eru móti frv., eru ekki í raun og veru móti dýrtíðarhjálp, heldur að þeir fái hana, sem ekki þurfa þess. (B. J.: Sem sveitarstjórnirnar mæltu með). Það kom fram hjá háttv. þm. Dala. (B. J.), að hann vildi, að sýslu- og hreppafjelög væru skylduð til að greiða þeim hjálp, sem ekki eru teknir með í þessu stjórnarfrv. Jeg hygg, að stjórnin hafi ekki ætlast til þess, og að engum manni hafi dottið það í hug, nema háttv. þm. Dala. (B. J.). Dýrtíðaruppbót er ekki ætluð öðrum en þeim, sem hafa landsstörf að aðalatvinnuvegi. Úr því að þetta er svo, getur það verið álitamál, hvort t. d. prestar, sem búa í sveit og verja meiri tíma til búskapar en embættisverka, ættu að fá dýrtíðarhjálp, og sama getur átt við um sýslumenn, sem búa í sveit. (B. J.: Má jeg spyrja, hafa þeir prestar meira að gera, sem ekki búa í sveit?). Þegar litið er á oss þingmenn, þá kemur verðfallið nokkru þyngra niður á oss, sem ekki getum verið heima hjá oss, en t. d. prestum, sem geta verið heima á jörðum sínum. Við aftur á móti verðum að sitja hjer í Reykjavík og getum ekki hugsað um okkar sakir, en svo er ekki með flesta presta. Öðru máli er að gegna um lækna, sem búa í sveit; þeir hafa miklum störfum að gegna og eiga bágt með að stunda aðra atvinnu með góðu eftirliti. Þeir yrðu því ver farnir, ef sama gengi yfir þá.
Háttv. þm. Dala. (B. J.), sem bæði nú og áður talar allmikið og alleinkennilega, er altaf að brigsla þeim, sem ekki vilja ganga eins langt og hann, og kallar þá nirfla o. s. frv. Þetta eru hörð orð og ósvífin í garð samþingismanna hans, og varla hægt að forsvara þau. Jeg vil sjerstaklega benda þessum þingmanni (B. J.) á, að það er skrítið, að hann skuli vera að setja sig upp á þennan háa hest, því að bæði jeg og aðrir þingmenn hafa í mörg ár verið að reyna að gera hann að sjálfstæðum manni með fjárveitingum. (B. J.: Ef þm. hefir verið að greiða atkv. með því, sem hann veit að er ekki rjett, þá er gott, að kjósendur hans fái nú að vita það). Auk þess er hann (B. J.) nú að berjast fyrir því að fá dýrtíðaruppbót, og sækir það svo fast, að jeg hefi heyrt, að hann hafi heimtað af sínum flokki, að hann yrði skipaður í allar þær nefndir, sem líklegt er að fengju þetta mál til meðferðar. (E. A.: Þm. Dala. er dauður). (B. J.: Hann rís upp aftur). Jeg get ekki að því gert, þótt þm. Dala. (B. J.) sje dauður. Ætlaði ekki að tala, en varð að gera það að síðustu. Jeg vil benda háttv. þm. Dala. (B. J.) á, að fyrir austan var rætt um dýrtíðaruppbótina á fundi, sem síra Magnús í Vallanesi, bróðir hans, var staddur á, og þar var samþykt óánægjuyfirlýsing til þingsins um gerðir þess í málinu í vetur, og var síra Magnús með því. Það væri gott fyrir háttv. þm. Dala. (B. J.) að taka bróður sinn sjer til fyrirmyndar og reyna að vera eins skynsamur fjármálamaður eins og hann. Það hefir verið vitnað í, hvað embættismennirnir segðu sjálfir um dýrtíðarhjálpina. Jeg veit, að ýmsir prestar hafa sagt sem svo, að þeir tækju við peningunum, úr því að þeim væru fengnir þeir, en þeim væri í raun og veru engin þægð í því og hefðu ekki búist við þeim. Þótt þessir menn sjeu embættismenn, þá eru þeir þó svo sanngjarnir, að þeir hafa búist við, að það mætti verja peningunum betur á annan hátt. (Sk. Th.: Hafa þeir sagt, að dýrtíðaruppbótin væri ranglát?). Nei. Ekki veit jeg til þess. Háttv. þm. Stranda. (M. P.) sagði það rangt, að meiri hluti þjóðarinnar væri óánægður með þessa ráðstöfun. Jeg hygg, að það sje satt, að meiri hlutinn sje óánægður. Jeg sje það á þessari þingmálafundargerð úr Strandasýslu, að tillagan móti dýrtíðaruppbót er ekki harðorð, en við vitum, að háttv. þm. Stranda. (M. P.) er orðhagur maður og hefir því getað talað um fyrir kjósendum sínum. (M. P.: En 1. þm. N.-M. á hinn veginn?). Jeg sá þó í einni till. úr Strandasýslu, að samþ. var að taka framleiðslu manna til greina. Menn hafa sjerstaklega hneykslast á því, að þeir, sem búa við svipuð kjör og bændur, skuli hafa fengið jafna upp bót og þeir, sem lifa eingöngu á launum sínum.
Af því að háttv. þm. Dala. (B. J.) er að koma með aths. við og við, ætla jeg að benda á þingmálafundargerð úr Dalasýslu, þar sem samþykt var óánægjuyfirlýsing út af dýrtíðaruppbótinni. Hjer sjest það, hvað þm. Dala. (B. J.) rekur dyggilega erindi kjósenda sinna. (B. J: Tillagan var samþ. með 4 atkv. gegn 1 á 1 fundinum, og voru þó yfir 20 atkvæðisbærir menn mættir, sem alls ekki vildu sinna slíku bulli og greiddu því ekki atkv.). Jeg býst við, að ef jeg færi til Dalasýslu, þá gæti jeg fengið almennar óánægjuyfirlýsingar um dýrtíðarmálið frá kjósendum. (B. J.: Það mundi enginn tala við þennan þm. þar).
Háttv. þm. N.-Ísf. (Sk. Th.) talaði um þann barlóm, sem bændaþingmenn væru altaf með, en þetta er skakt, því að jeg hefi sýnt, að við höldum fram þjóðarviljanum. (Sk. Th.: Þm. hefir einmitt ekki hepnast að sýna það). Sem umboðsmenn þjóðarinnar viljum við fara sparlega með fje hennar og sýna öllum sanngirni. Þetta barlómshjal er því alveg rangt. Það mætti með meiri sanni segja, að embættismenn hjer og skólamenn væru sífelt að berja lóminn, en það gera stjettarbræður þeirra úti um land ekki. Af því, að málið fer í nefnd, fjölyrði jeg ekki meir um það. Jeg var að líta í þingmálafundagerðir úr Vestur-Skaftafellssýslu og fanst annað koma þar fram en það, sem háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) hjelt fram í vetur. Kemur það úr hörðustu átt fyrir hann. En jeg ætla nú ekki að tala um hans frammistöðu.
Úr því að allir eru að leiðbeina nefndinni, sem fær málið til meðferðar, vil jeg brýna það fyrir henni að kunna sjer hóf og kippa sjer ekki upp við, þótt háttv. þm. Dala. (B. J.) brýni röddina.